Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunnlaugsson
Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson: "Við ættum samt að hafa í huga að ábyrgðin er okkar sjálfra."

Þessa dagana er þjóðin eðlilega upptekin af veirunni sem öllu ræður. Reglulega birtast fyrirmæli eða tilmæli yfirvalda um háttsemi fólks. Þá er frekar ruglingslegt að ætla að átta sig á því hvaða fyrirmælum yfirvöldin telja mönnum skylt að fylgja og hver séu tilmæli sem menn ráða sjálfir hvort þeir fylgi.

Núna síðast var golfvöllum lokað, þó að menn geti stundað golfið með svipuðum tengingum við annað fólk og gildir í gönguferðum. Þá virðist stefna í að Íslandsmótinu í knattspyrnu verði lokið án fleiri kappleikja en þeirra sem þegar hafa farið fram. Þetta gerist þó að ekki sé vitað annað en að knattspyrnuvellirnir séu flestir í ágætu ástandi og unnt sé að leika á þeim án áhorfenda. Til dæmis varð ekki betur séð en landsleikur í knattspyrnu sem fram fór á Laugardalsvelli fyrir fáum dögum tækist bara vel. Á ferðinni eru ríkir hagsmunir margra knattspyrnufélaga, sem ýmist eiga von um að komast á milli deilda eða jafnvel til að öðlast rétt til þátttöku í alþjóðlegum keppnum, þar sem háar tekjur eru í húfi. Fleiri dæmi mætti nefna af svipuðum toga.

Ástæða er til að vekja athygli manna á að yfirvöld í landinu hafa afar takmarkaðar heimildir til að stjórna háttsemi manna í veirufárinu með valdboði. Í sóttvarnarlögum er ekki að finna víðtækar heimildir til slíks. Reyndar er í ýmsum tilvikum vafasamt að stjórnvöld gætu skert stjórnarskrárvarin réttindi manna með bindandi fyrirmælum til almennings, þó að styddust við sett lög. Til slíkra fyrirmæla þarf heimildir í stjórnarskránni sjálfri.

Það er auðvitað sjálfsagt að yfirvöld heilbrigðismála beini tilmælum til borgaranna um æskilega hegðun þeirra við þessar aðstæður. Það er líka sjálfsagt fyrir almenning að fara að þessum tilmælum í flestum tilvikum, því að öll viljum við takmarka úrbreiðslu þessa vágests sem veiran er. Við ættum samt að hafa í huga að ábyrgðin er okkar sjálfra. Ef til dæmis stjórnarráðið gæfi mér fyrirmæli um að halda mig í tveggja metra fjarlægð frá eiginkonunni myndi ég ekki hlíta því. Skítt með veiruna.

Höfundur er lögmaður.

Höf.: Jón Steinar Gunnlaugsson