Blönduós Haustið nagar hægt og bítandi laufin á trjánum og snjórinn búinn að koma sér fyrir efst í Langadalsfjalli.
Blönduós Haustið nagar hægt og bítandi laufin á trjánum og snjórinn búinn að koma sér fyrir efst í Langadalsfjalli. — Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Úr bæjarlífinu Jón Sigurðsson Blönduósi Í gær kviknaði vetrartungl í vestri. Þetta er skýr vísbending um að haustið er á síðustu metrunum og veturinn er rétt handan við hornið.

Úr bæjarlífinu

Jón Sigurðsson

Blönduósi

Í gær kviknaði vetrartungl í vestri. Þetta er skýr vísbending um að haustið er á síðustu metrunum og veturinn er rétt handan við hornið. Þegar litið er yfir farinn veg kemur ýmislegt í ljós og þegar menn spá í framtíðina þá er ekkert svar betra en „það kemur í ljós“. „Það kemur í ljós,“ er að mínu mati setning ársins og á alveg eins við hér við botn Húnafjarðar sem og annars staðar.

Það kom til dæmis í ljós að veiðin í Blöndu var með allra daprasta móti í sumar. Hér á árum áður veiddust að að meðaltali 1.100 laxar og mest rétt um 2.000 laxar á fjórar stangir. En í sumar voru taldir 475 laxar upp úr ánni á 14 stangir. Eitthvað hefur gerst en hvað, það kemur ef til vill í ljós.

Kirkjugarðinum á Blönduósi hefur verið sýndur margvíslegur sómi hin síðustu ár. Nú í haust eru menn að leggja síðustu hönd á byggingu geymsluskúrs í garðinum. Áður höfðu stígar og útveggir garðsins verið endurbættir og sett upp upplýsingaskilti. Gaman er að geta þess að þessi uppbygging hefur verið unnin töluvert í sjálfboðavinnu og til að mynda var afrakstur á einu af hinum margrómuðu kótilettukvöldum á Blönduósi notaður til að kaupa allt efni í geymsluskúrinn. Og svo því sé til haga haldið þá er forsvarsmaður kótelettukvöldanna Valdimar Guðmannsson, sami maðurinn og stýrir kirkjugarðsráðinu.

Gamla brúin á Blöndu sem var vígð árið 1897 og flutt árið 1962 fram í Svartárdal til þessa að tengja Steinárbæi við þjóðvegakerfið kom árið 2001 aftur á Blönduós. Þessi elsta brú landsins var hætt að gegna hlutverki sínu fyrir Steinárbændur því samgöngutæki nútímans eru orðin breiðari en þessi trausta og fornfræga brú. Nú hefur verið ákveðið að setja brúna í það verkefni að tengja náttúruparadísina Hrútey við fastalandið. Framkvæmdir eru hafnar af fullum þunga og stefnt að því að gamla Blöndubrúin verði komin á sinn stað áður en mjög langt um líður.

Ekki er langt síðan byggingu fimm leiguíbúða var lokið á Sunnubrautinni. Núna er hafin bygging á fimm til viðbótar. Þetta segir aðeins eitt að samfélagið hér stendur föstum fótum og sækir fram ef eitthvað er. Fyrst hér eru nefndar framkvæmdir þá er rétt að segja frá því að að bygging verknámshúss við grunnskólann er langt kominn og langþráður frágangur skólalóðar í augsýn. Breytingar á gömlu byggingavöruverslun kaupfélagsins eru á lokametrunum og munu Hárgreiðslustofa Bryndísar og Vínbúðin væntanlega flytja í hið breytta húsnæði í mánaðarlok. Húnakaffi, sem reyndar er bakarí, hefur komið sér fyrir á þessu svæði og hafið starfsemi. Með þessum breytingum tengist þessi starfsemi við Kjörbúðina svo hér má segja að fyrsta „Mollið“ sé risið á Blönduósi.

Eins og einhverjir vita þá gistir Blönduósbæ töluverður fjöldi grágæsa frá apríl fram í september. Koma upp ungum og sjá um áburð á ákjósanlega staði sem og óákjósanlega. Um nokkurra ára skeið hefur verið fylgst grannt með þessum gæsum, GPS sendi komið fyrir á 1-3 gæsum árlega svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra. Í sumar voru sendar settir á tvær gæsir og hafa þær skráð ferðir sínar samviskusamlega í sumar og haust. Upp úr mánaðarmótum ágúst september hurfu þessar gæsir úr bænum og voru fljótlega komnar í kornakra í Skagafirði. Önnur gæsin tolldi ekki lengi innan um skotglaða Skagfirðinga og kom sér yfir í Eyjafjörðinn og dvelur nú rétt við flugvöllinn á Akureyri.

Af framsögðu má sjá að ásættanlegur gangur er á lífinu við botn Húnafjarðar, atvinnuleysið mælist í kring um 3% og veðrið hefur leikið við okkur undanfarna daga. Í stuttu máli þá bera sig flestir vel.