Framkvæmdir við Reykjavík Edition-hótelið eru nú í fullum gangi.
Framkvæmdir við Reykjavík Edition-hótelið eru nú í fullum gangi. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Mikið annríki hefur verið á Austurbakkanum síðustu misseri þar sem Reykjavík Edition-hótelið rís og er óðum að taka á sig mynd.

„Þetta lítur ágætlega út og við höldum okkar striki við að klára hótelið,“ segir Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Íslenska fasteignafélagsins, sem er í eigandahópi hótelsins. Verkið er þegar á eftir áætlun og segir Sveinn að faraldurinn hafi sett strik sitt í reikninginn, m.a. hafi framleiðsla innréttinga tafist í Evrópu, en nú horfi öðruvísi við og hótelið verði innréttað á næstu mánuðum.

Sveinn segir markmiðið að ljúka framkvæmdum á vordögum og stefnt sé á opnun hótelsins á svipuðum tíma. Um óvissu næsta sumars og hvort opnun verði frestað ef ekki sér til sólar í komu ferðamanna, segir Sveinn að „staðan verði tekin eins og hún þróast“. Þó séu fullar væntingar til þess að hægt verði að opna og hefja starfsemi. Reyndar segir hann að þar á bæ séu menn „mjög brattir“ og geri sér vonir um að viðsnúningurinn geti orðið kröftugur þegar allt fer af stað og því ríki spenna og tilhlökkun fyrir tilvonandi opnun.

Spurður um tilvonandi hótelrekstur segir Sveinn að Reykjavík Edition verði í algerum sérflokki hvað varðar innviði og þjónustu og „ekkert sem komi nálægt þessu hér á landi“. Starfsemin verði ekki eingöngu fyrir hótelgesti, heldur „gesti og gangandi“ sem vilja koma og njóta.

Eigendahópurinn er að sögn Sveins óbreyttur. Marriot-hótelkeðjan er enn meðal hluthafa, en hótelið er ekki markaðssett undir þess merkjum. Kostnað segir hann enn áætlaðan um 20 milljarða og að verkefnið sé fullfjármagnað.