Sveinbjörn Iura
Sveinbjörn Iura
Sveinbjörn Iura er úr leik á Grand Slam-mótinu í júdó í Búdapest í Ungverjalandi en hann tapaði gegn Damian Szwarnowiecki frá Póllandi á laugardag. Sveinbjörn keppir í -81 kg flokki og mætti þar Pólverjanum sem er í 42. sæti heimslistans.

Sveinbjörn Iura er úr leik á Grand Slam-mótinu í júdó í Búdapest í Ungverjalandi en hann tapaði gegn Damian Szwarnowiecki frá Póllandi á laugardag. Sveinbjörn keppir í -81 kg flokki og mætti þar Pólverjanum sem er í 42. sæti heimslistans. Szwarnowiecki var þó erfiðari andstæðingur en heimslistinn gefur til kynna, en hann hafnaði í 5. sæti á HM árið 2018.

Sveinbjörn er einn þeirra íslensku íþróttamanna sem hefur unnið að því síðustu árum að vinna sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Tókýó sem fara áttu fram í sumar en var frestað þar til næsta sumar. Hann hefur ekki haft tækifæri til að keppa á alþjóðlegum mótum í langan tíma vegna faraldursins en Alþjóðajúdósambandið stóð síðast fyrir móti í febrúar.

Sveinbjörn er í 64. sæti heimslistans. Hann náði meðal annars 3. sæti á Asian Open í Hong Kong í fyrra.