Halldór Erlendsson fæddist 23. apríl 1963. Hann lést 4. október 2020.

Útför Halldórs fór fram 16. október 2020.

Kveðja frá deGaul

Núna er Dóri deGaul bróðir okkar og vinur farinn.

Þótt kynni okkar hafi verið mislöng þá eru minningarnar um fjallaferðirnar, sjósundin, hjólatúrana,

kayak-róðrana og önnur undarleg uppátæki og sprell ógleymanlegar.

Velviljinn, tryggðin, verklagnin, rólyndið, hjálpsemin, tónlistin og dansinn er okkur öllum ofarlega í huga.

Eftir situr minning um eðaldreng sem verður sárt saknað.

Takk fyrir ómetanlega vináttu.

Við félagarnir sendum fjölskyldu Dóra okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Arnaldur, Axel, Bertel,

Karl (Calli), Einar, Guðmundur (Gummi), Kjartan, Oddur, Óli, Páll (Palli), Remi, Óskar (Skari) og Viðar.