Áskorun Utanumhald fasteignaviðskipta hefur sáralítið breyst í áranna rás.
Áskorun Utanumhald fasteignaviðskipta hefur sáralítið breyst í áranna rás. — Morgunblaðið/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nýtt markaðstorg fyrir fasteignaviðskipti hefur litið dagsins ljós á vefsíðunni www.efasteignir.is. Haraldur Pálsson er framkvæmdastjóri e-fasteigna og segir þessa lausn gott dæmi um hvernig nýta megi tæknina til að safna saman ýmsum gögnum með sjálfvirkum hætti og þannig spara bæði tíma og peninga allra sem í hlut eiga.

Viðtal

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Nýtt markaðstorg fyrir fasteignaviðskipti hefur litið dagsins ljós á vefsíðunni www.efasteignir.is. Haraldur Pálsson er framkvæmdastjóri e-fasteigna og segir þessa lausn gott dæmi um hvernig nýta megi tæknina til að safna saman ýmsum gögnum með sjálfvirkum hætti og þannig spara bæði tíma og peninga allra sem í hlut eiga.

Lýsa má e-fasteignum sem gátt sem leiðir saman seljendur, kaupendur og fasteignasala og einfaldar þeim öflun og miðlun gagna til að auka gagnsæi í fasteignaviðskiptum. „Endanotandinn hefur mjög skýra yfirsýn yfir fasteignaviðskipti sín og á hægt um vik með að sjá öll þau gögn sem varða viðskipti í fortíð eða nútíð. Seljandi getur fylgst með í rauntíma þegar tilboð berast og svarað gagntilboðum í gegnum þessa gátt svo að tilboðsferlið verður gagnsærra og liprara og boðleiðirnar styttri,“ segir Haraldur. „Þá einfaldar markaðstorgið vinnu fasteignasala til muna, en seljandi getur verið búinn að forvinna gögn til fasteignasalans og auðveldað honum vinnuna, t.d. með því að hlaða upp myndum og gera einfalda lýsingu á eigninni, afla yfirlýsingar húsfélags o.s.frv. sem bætir yfirsýn fasteignasalans. Kerfið einfaldar auk þess, með sjálfvirkum hætti, ýmis handtök sem í dag taka drjúgan hlut af vinnutíma fasteignasala.“

Haraldur leggur á það áherslu að e-fasteignir er ekki í hlutverki fasteignasölu heldur er vefsíðan tæki sem bætir hina ýmsu ferla í fasteignaviðskiptum. Að vissu leyti má líkja þjónustunni við leigumiðlunarsíður sem leiða saman leigjendur og leigusala, nema þó að í tilviki fasteignaviðskipta er um flóknari viðskipti að ræða sem kalla á gagnaöflun úr ýmsum áttum.

Greiðari samskipti á milli kaupanda og seljanda

„Ferð seljanda hefst með því að hann stofnar notendareikning og auglýsir í framhaldinu eftir tilboðum frá fasteignasölum eftir að hafa sett inn einfalda lýsingu á fasteigninni og myndir eins og við á, en það er undir seljandanum komið hvort hann setur inn slík gögn á þeim tímapunkti,“ segir Haraldur. „Fasteignasalarnir geta vegið og metið söluverkefnið og ef seljanda hugnast tilboð þeirra þá geta þeir gert þjónustusamning sín á milli með rafrænum hætti,“ segir Haraldur og bætir við að allar þær upplýsingar sem hægt er að nálgast í gagnasöfnum hins opinbera séu gerðar aðgengilegar í gegnum vef e-fasteigna. „Það er mjög gaman að segja frá því að nú þegar hafa aðilar nýtt sér þennan söluferil á vefsvæðinu og fengið hagstæða söluþóknun í gegnum vefsvæðið þar sem aðilar voru að stórum hluta sjálfir búnir að undirbúa nauðsynleg gögn vegna sölunnar. Kerfið býður líka upp á sjálfvirka skjalagerð og stefnt er að því að einnig verði hægt að framkvæma rafrænar þinglýsingar í gegnum e-fasteignir, þ.e. um leið og stjórnvöld opna að fullu fyrir þá þjónustu.“

Með því að greiða fyrir beinum samskiptum milli seljenda og áhugasamra kaupenda segir Haraldur að tilboðsferlið geti gengið hraðar og betur fyrir sig en ef fasteignasali væri í hefðbundnu hlutverki sem milliliður. „Og þar sem öll fylgigögn eru látin fylgja söluyfirlitinu í kerfinu eru kaupendur t.d. ekki að lenda í því að fá á síðustu stundu upplýsingar sem kunna að breyta forsendum kauptilboðs sem náðst hefur samkomulag um.“

Sjálfur minnist Haraldur þess að hafa þurft að vera á þeytingi við að aðstoða konu sína við að gera tilboð í fasteign. „Hún hafði ekki möguleika á því að skjótast úr vinnu sinni til að skrifa undir kauptilboð á venjulegum afgreiðslutíma fasteignasalanna. Kom það í minn hlut að hoppa út í bíl og skjótast með skjöl á milli staða, í ferli sem okkur hefur nú tekist að gera rafrænt og sjálfvirkt að stórum hluta svo viðskipti með fasteignir geta farið fram með á þeim stað og tíma sem fólki hentar.“

Þjónustuframboð e-fasteigna mun halda áfram að vaxa og segir Haraldur m.a. unnið að því í samvinnu við fjármálastofnanir að leyfa kaupendum að gera greiðslumat fyrir fram og geta þannig flýtt fyrir viðskiptum þegar samkomulag næst um kaupverð; verði þá ekki lengur þörf á að bíða í nokkra daga eða jafnvel nokkrar vikur eftir að kaupandinn ljúki greiðslumati.“

Hlutverk fasteignasalans er óbreytt og hann ber sömu skyldur og áður gagnvart kaupendum og seljendum en Haraldur segir kerfið spara þeim sporin svo að fasteignasalar eigi að geta afkastað meiru í vinnu sinni og sinnt fleiri viðskiptavinum. „Og þar skapast vonandi svigrúm til að keppa í verði svo neytendur njóti góðs af í formi lægri sölu- og umsýsluþóknunar.“

Þróun sem gagnast öllum

Haraldur bendir á að svipuð tækifæri megi finna víða og bindur hann miklar vonir við þá stefnu stjórnvalda að raf- og sjálfvirknivæða ýmsa þjónustu og skjalaafgreiðslu hins opinbera. Þannig er núna unnið að því að gera mikið af þjónustu sýslumanna aðgengilega með rafrænum hætti fyrir lok þessa árs. „Með því er verið að spara atvinnulífinu töluverða fyrirhöfn og ættu áhrifin að verða mjög greinileg á höfuðborgarsvæðinu þar sem í dag þarf að sækja þessa þjónustu á einn stað og oft heilmikil umferð í kringum skrifstofur sýslumanns. Einnig er sífellt verið að fækka umsýslustofnunum á landsbyggðinni og rafrænar lausnir því ekki síður mikilvægar þar,“ segir hann. „Töluverður kostnaður fellur til vegna þessa hjá fyrirtækjum og einstaklingum, en eins er verið að fylla vinnudag opinberra starfsmanna af verkefnum sem ekkert er til fyrirstöðu að leysa af hendi með skilvirkari og nútímalegri hætti.“