Þjónusta Margir hafa þurft að breyta leigubílunum með skilrúmum vegna sóttvarna.
Þjónusta Margir hafa þurft að breyta leigubílunum með skilrúmum vegna sóttvarna.
Samdráttur tekna leyfishafa leigubifreiða af akstri og fjöldi ferða hefur haldist að öllu jöfnu milli 80 og 90% allt frá 15. mars síðastliðnum. Margir hafa lagt inn leyfi sín tímabundið. Þann 22. október sl.

Samdráttur tekna leyfishafa leigubifreiða af akstri og fjöldi ferða hefur haldist að öllu jöfnu milli 80 og 90% allt frá 15. mars síðastliðnum. Margir hafa lagt inn leyfi sín tímabundið. Þann 22. október sl. voru 100 leyfi leigubifreiða á höfuðborgarsvæðinu í tímabundinni innlögn auk nokkurra sem hafa hætt rekstri. Þá hefur fjöldi leigubifreiða í umferðinni minnkað um nær 20%.

Þetta kemur fram í umsögn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra um stjórnarfrumvarpið um tekjufallsstyrki. Þar segir að leigubílstjórar hafi orðið fyrir miklu tekjufalli vegna lokana og sóttvarna í veirufaraldrinum. Þeir hafi þraukað við þessar aðstæður, haldið uppi þjónustu, starfað í framlínunni, berskjaldaðir fyrir smiti, komið sýnum til greiningarstöðva, ekið sjúklingum og flugfarþegum í sóttkví. omfr@mbl.is 8