Heimsleikar Katrín Tanja Davíðsdóttir fékk silfurverðlaun.
Heimsleikar Katrín Tanja Davíðsdóttir fékk silfurverðlaun. — Ljósmynd/Instagram
Katrín Tanja Davíðsdóttir endaði í öðru sæti á heimsleikunum í crossfit sem lauk í Aromas í Kaliforníu um miðnættið í fyrrakvöld að íslenskum tíma. Hún fékk 665 stig úr tólf greinum en Tia-Clair Toomey frá Ástralíu sigraði með yfirburðum og fékk 1.
Katrín Tanja Davíðsdóttir endaði í öðru sæti á heimsleikunum í crossfit sem lauk í Aromas í Kaliforníu um miðnættið í fyrrakvöld að íslenskum tíma. Hún fékk 665 stig úr tólf greinum en Tia-Clair Toomey frá Ástralíu sigraði með yfirburðum og fékk 1.025 stig. Kari Pearce frá Bandaríkjunum fékk 585 stig í þriðja sæti. Tíu keppendur voru valdir til þátttöku, fimm konur og fimm karlar, en hjá körlunum vann Mathew Fraser með enn meiri yfirburðum en Toomey.