Eftirsóttur Ísak Bergmann Jóhannesson vekur geysilega athygli.
Eftirsóttur Ísak Bergmann Jóhannesson vekur geysilega athygli.
Frásagnir af áhuga stórliða í knattspyrnunni á Skagamanninum Ísak Bergmann Jóhannessyni eru ekki úr lausu lofti gripnar.
Frásagnir af áhuga stórliða í knattspyrnunni á Skagamanninum Ísak Bergmann Jóhannessyni eru ekki úr lausu lofti gripnar. Yfirnjósnari sænska liðsins Norrköping sem Ísak leikur með staðfesti í gær við Aftonbladet að ítölsku meistararnir í Juventus og ensku félögin Manchester United og Liverpool séu öll að fylgjast með Ísak. Hafa þau öll haft samband við Norrköping vegna áhuga á Skagamanninum sem er aðeins 17 ára gamall en er orðinn einn umtalaðasti leikmaðurinn í Svíþjóð.