Helgi Bjarnason helgi@mbl.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

„Mér sýnist að menn séu almennt að búast við því að verðið verði lágt næstu misserin og þetta geti orðið jóla- og páskavertíð með öðru sniði en verið hefur undanfarin ár,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax. Verð á eldislaxi lækkaði í síðustu viku og samkvæmt fréttum norskra vefmiðla er verðið sem einstaka seljendur eru að fá það lægsta í fimm ár. Ástæðan er viðbrögð markaðarins við aukinni útbreiðslu kórónuveirunnar í Evrópu og útgöngubanni og lokun veitingastaða vegna ástandsins.

Veturinn er mikilvægasti sölutími laxaafurða, ekki síst aðventa, jól, fasta og páskar. Á sama tíma er framleiðslan að nálgast hámark þannig að mikið framboð er af laxi. Meðalverð á laxi var 46 norskar krónur á kílóið í 42. viku ársins sem svarar til um 700 króna íslenskra. Vísbendingar eru um að verðið hafi lækkað talsvert í síðustu viku og hafi farið undir 40 kr. norskar sem svarar til um 600 kr. íslenskra.

„Þróunin mun skýrast betur í þessari viku. Ég hef þá trú að matvæli muni alltaf finna sér leið inn á markaðinn. Menn laga sig að nýjum aðstæðum. Það hefur sýnt sig í þessum faraldri,“ segir Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish á Vestfjörðum.

Markaður
» „Getur orðið jóla- og páskavertíð með öðru sniði en verið hefur.“
» „Ég hef þá trú að matvæli muni alltaf finna sér leið inn á markaðinn.“