Midtjylland Mikael Anderson leikur með dönsku meisturunum.
Midtjylland Mikael Anderson leikur með dönsku meisturunum. — Morgunblaðið/Eggert
Mikael Anderson, landsliðsmaður í knattspyrnu, getur í kvöld leikið sinn annan leik í Meistaradeild Evrópu þegar lið hans, danska meistaraliðið Midtjylland, mætir Englandsmeisturum Liverpool á Anfield.
Mikael Anderson, landsliðsmaður í knattspyrnu, getur í kvöld leikið sinn annan leik í Meistaradeild Evrópu þegar lið hans, danska meistaraliðið Midtjylland, mætir Englandsmeisturum Liverpool á Anfield. Mikael varð fjórtándi Íslendingurinn til að spila í keppninni þegar hann kom inn á gegn Atalanta frá Ítalíu í síðustu viku en danska liðið tapaði 0:4. Liverpool vann Ajax 1:0 í fyrstu umferðinni í síðustu viku og er með alla sömu menn tiltæka og í leiknum við Sheffield United á laugardaginn.