Holland Elías Már Ómarsson er marksækinn sem fyrr.
Holland Elías Már Ómarsson er marksækinn sem fyrr. — Ljósmynd/Excelsior
Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson skoraði tvívegis fyrir Excelsior þegar liðið vann öruggan 4:0 sigur á Helmond Sport í 3. umferð hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Elías skoraði annað og þriðja mark Excelsior á 44. og 61. mínútu.

Er hann auk þess markahæstur í deildinni með tíu mörk í fyrstu níu leikjunum og er því kominn með tólf mörk á tímabilinu.

Með sigrinum í gær er Excelsior komið í 32 liða úrslit bikarkeppninnar.