[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Oddur Þórðarson Freyr Bjarnason Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segist vera ósáttur við þá fregn landlæknis að smit sem kom upp á Landakotsspítala sé atvik sem þurfi að rannsaka.

Oddur Þórðarson

Freyr Bjarnason

Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segist vera ósáttur við þá fregn landlæknis að smit sem kom upp á Landakotsspítala sé atvik sem þurfi að rannsaka. Rúmlega áttatíu kórónuveirusmit eru rakin til smitsins sem upp kom á Landakoti og starfar Landspítalinn nú á neyðarstigi. Már segir álagið mikið. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, sagði í samtali við mbl.is í gær, að hópsmitið yrði mögulega tilkynnt sem alvarlegt atvik og yrði það þá rannsakað sem slíkt. Lögregla rannsakar nú mál sem upp kom vegna smits um borð í Júlíusi Geirmundssyni. Spurður út í málin tvö segir Kjartan að hann telji þau ekki vera sambærileg og bendir á að lögregla verði að svara fyrir það. Hvorki náðist í Víði Reynisson yfirlögregluþjón né Sigríði Björk Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra við vinnslu fréttarinnar. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, sagði hins vegar í Kastljósi í gær að ekki væri útlit fyrir að misbrestur í starfsemi Landakotsspítala hafi gert það að verkum að hópsmitið kom upp.

„Ég er mjög óánægður með fregn sem borist hefur frá landlækni um að þetta sé atvik sem þurfi að rannsaka. Það gengur alveg gegn því sem sagt hefur verið um samstöðu í baráttunni við þennan faraldur. Á farsóttartímum er mikilvægast að rekja smit – rakning er ígildi rannsóknar og rakning er tólið sem við höfum til að finna út hvað er á seyði,“ segir Már í samtali við Morgunblaðið.

Hann segir einnig að ekki sé útlit fyrir að um neitt glæpsamlegt hafi verið að ræða eða þá að nokkur misbrestur hafi endilega orðið í starfsemi Landakotsspítala.

„Við verðum að geta talað saman,“ segir Már um mismunandi stofnanir og embætti innan heilbrigðisgeirans. „Við erum í rauninni að reyna að rekja smitið eftir bestu getu en ekki að áfellast hvert annað. Starfsmenn, sjúklingar og aðstandendur þeirra þurfa ekki á þessum tímapunkti að heyra af því að það sé verið að rannsaka þá eða að gefa í skyn einhverja vanrækslu af þeirra hálfu.“

Már segir þó sjálfsagt að skoða upptök hópsmitsins til þess að koma megi í veg fyrir að svona hendi aftur. Það sé þó ekkert tilefni til þess að tilkynna um þetta atvik neitt sérstaklega, hvað þá að það leiði á endanum til kæru eða einhvers slíks.