Björn Arnar Bergsson var fæddur í Reykjavík 13. júlí 1935, sonur hjónanna Söru Ólafsdóttur og Bergs Arnbjörnssonar sem bjuggu lengst af á Akranesi. Björn lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 22. október 2020.

Björn ólst upp í Reykjavík, Borgarnesi og Akranesi. Systkini hans voru Ólafur, f. 1927, d. 2008, Þorgerður, f. 1928, d. 2008, Guðrún, f. 1933, d. 2018, og Auður, f. 1945, d. 1963.

Björn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu Ingólfsdóttur, þann 1. janúar 1958Foreldrar Ingibjargar voru Ingólfur Gunnlaugsson og Sesselja Sveinsdóttir.

Börn Björns og Ingibjargar eru: 1) Sesselja, fædd 30. október 1957. Hún á Ingu Maríu og Ara Björn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Ólafi Unnari Kristjánssyni. Inga María er gift Ásgeiri Viðari Árnasyni og eiga þau saman Freyju Rún og Írisi Kötlu. Ari Björn á soninn Ólaf Árna með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Hildi Árnadóttur. 2) Sara, fædd 16. febrúar 1962, gift Gulleik Løvskar. Hún á Arnar Ólaf Hvanndal með fyrrverandi sambýlismanni sínum, Ólafi Hvanndal, f. 1962, d. 2014. Fyrri sambýliskona Arnars er Fanney Hólm Margrétardóttir og saman eignuðust þau Kristófer Eggert. Núverandi sambýliskona Arnars er Þórunn Hafdal og saman eiga þau Storm Gulleik. Fyrir á Þórunn synina Berg Andra og Hávarð Arnar. 3) Inga Birna, fædd 6. júlí 1965. Inga Birna á Stellu Björt með Gunnari Bergmann Traustasyni og Guðmund Ámundason með eiginmanni sínum, Ámunda Guðmundssyni. Stella er í sambúð með Alexander Fannari Kristjánssyni og eiga þau soninn Véstein Flóka. 4) Ingólfur, andvana fæddur 26. maí 1975. 5) Ingólfur Arnar, fæddur 17. ágúst 1976. Hann er giftur Carynu Gladys Bolivar og saman eiga þau Ingibjörgu Carmen.

Björn og Inga bjuggu lengst af á Garðabrautinni á Akranesi, í húsinu sem þau byggðu þar. Síðustu sautján árin áttu þau heimili á Prestastíg í Grafarholti.

Björn lauk meistaraprófi í rafvirkjun 1959 og varð síðar meistari í rafveituvirkjun. Hann vann alla tíð hjá RARIK og sá um Borgarfjörðinn. Hann var bæði í línuviðgerðum og sá um að tengja bæi og bústaði. Einnig las hann af mælum og sinnti viðhaldi. Fjölskyldan fór ósjaldan með honum í ferðirnar upp í Borgarfjörð.

Björn var mikið í veiði, bæði skot- og laxveiði. Þau hjónin byggðu bústað við Vesturhópsvatn og undu sér þar löngum stundum. Björn Arnar var í björgunar- og hjálparsveitinni á Akranesi og fóru þau hjónin á sumrin í æfingaferðir upp á hálendi Íslands, löngu áður en ferðir þangað tíðkuðust. Þau ferðuðust alla tíð mikið um landið og víða í Evrópu.

Útför Björns fer fram frá Áskirkju í dag, 3. nóvember 2020. Í ljósi aðstæðna verða aðeins hans nánustu viðstaddir.

Elsku pabbi reyndist mér alltaf vel og var góður og traustur vinur. Ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa átt hann að. Hann var af gamla skólanum, fæddur 1935 en var samt óhræddur við að tjá væntumþykju sína til sinna nánustu. Ég á eftir að sakna hlýlegs faðmlagsins sem hann var óspar á. Ég á líka eftir að sakna hnyttinna tilsvara og samtala um lífið, dauðann og allt þar á milli.

Pabbi var fróðleiksfús og forvitinn um lífið og tilveruna og var til dæmis mikill aðdáandi Lifandi vísinda og horfði alltaf á „Nýjustu tækni og vísindi“ með mér og afa þegar ég var lítill strákur.

Og hann var einnig forvitinn um hið ókunna og las til dæmis bækur Erichs von Däniken. Hann var með opinn huga og vissi að við vitum ekki allt. En hann var sannfærður um að eitthvað biði okkar allra að þessu lífi loknu. Hann sagði mér eitt sinn að hann óttaðist sko ekki dauðann, nei hann væri eiginlega þvert á móti bara svolítið spenntur að fá að sjá hvað væri handan móðunnar miklu. Það var mér huggun að vita til þess að hann hefði þessa trú þegar hann kvaddi.

Það er svo skrítið að hugsa til þess að hann sé ekki lengur hérna með okkur, en minningarnar lifa og ég á nóg af þeim. Stórt safn af góðum minningum um góðan mann sem hugsaði vel um fjölskyldu sína og vini. Hans verður sárt saknað.

Hvíl í friði elsku pabbi.

Þinn sonur,

Ingólfur Arnar.

Í dag kveðjum við pabba, heiðarlegan og traustan mann. Hann átti góða vini í gegnum lífið og var mjög trygglyndur. Hann var húmoristi, fannst gaman að koma okkur til að hlæja og lagði töluvert í grínið. Hann var hugmyndaríkur og munum við eftir honum með sprell og mömmu hlæjandi.

Fjölskylda pabba var stór og hann náinn sínum systkinum. Þau Stella systir hans bjuggu á Akranesi nálægt hvort öðru. Heimilin runnu saman og frændsystkinahópurinn var stór og náinn. Óli bróðir hans bjó í Reykjavík og Dúna í Kópavogi. Fjölskyldur þeirra voru líka barnmargar og hátíð í bæ þegar þau komu í heimsókn á Akranes eða við suður til þeirra.

Pabbi og mamma voru saman í 65 ár og fögnuðu demantsbrúðkaupi 1. janúar 2018. Þau kynntust sumarið 1955 í Fornahvammi og voru saman alla tíð eftir það. Pabbi var hávaxinn og grannur með eldrautt, liðað hár og glettinn augnsvip. Mamma var lítil og nett, með blásvart hár, bókelsk, jafnlynd og dul. Á einu ferðalaginu um landið var pabbi á spjalli við mann í Kaupfélaginu á Egilsstöðum. Mamma spurði hann hvort þetta hefði verið gamall skólafélagi þar sem hún kannaðist ekki við manninn. Nei, hann hafði hitt hann í Kaupfélaginu á Höfn deginum áður. Foreldrar okkar ferðuðust mikið um landið, með okkur börnin og vinahópnum. Við fórum í tjaldútilegur og dagsferðir með nesti á sólríkum dögum. Fórum í skautaferðir í Skorradal þar sem pabbi dró okkur á snjóþotum á bílnum og skautuðum á stöðuvötnum hér og þar í Borgarfirði. Á frosnum vötnum gat maður séð niður á botn, sem var spennandi og ógnvekjandi. Við urðum aldrei hrædd því pabbi vissi hvað hann var að gera. Oft fórum við til Reykjavíkur til fjölskyldu mömmu, stundum í snarvitlausu veðri. Einmitt það sem pabbi var vanur; þvælast um sveitir í veðurofsa vinnunnar vegna. Einu sinni á leið til Reykjavíkur skreiddumst við í gegnum snjóbyl með þokuljósin á þar til við komum að stórum skafli. Pabbi fór þá út með skóflu og mokaði, setti keðjur undir bílinn og kom okkur heilum í bæinn.

Hann keypti gjarnan nýjustu græjur og sniðugt dót sem hann fann. Oft voru þetta raftæki og alls kyns vasaljós og ýmsar nýjungar handa mömmu. Eitt af þessu var græja til skera kartöflur og fengum við fyrstu frönsku kartöflurnar sem við höfðum séð og bragðað áður en þær fengust á veitingastöðum.

Pabbi var rómantískur og stjanaði við mömmu. Á veturna skóf hann bílinn áður en mamma vaknaði, hitaði hann upp og hellti upp á könnuna. Hann var morgunhani en mamma næturhrafn. Þau bættu hvort annað upp eins og dagur og nótt.

Hjá RARIK ók hann nálægt milljón kílómetrum. Við gætum fundið það út nákvæmlega, því hann skráði það vegna vinnunnar og henti engu. Við munum hann við skrifborðið og mamma að elda og stússa, þá heyrðum við hann kalla eitthvað á þessa leið: „Inga, hvar var ég á fimmtudaginn í síðustu viku?“ „Þú fórst upp í Andakílsárvirkjun um morguninn, hringdir í hádeginu frá Vatnshömrum og sagðist vera á leiðinni inn í Lundarreykjadal.“ Í bílnum var talstöð, við heyrðum oft kall úr henni, pabba svara og ljúka samtalinu með: yfir og út.

Við kveðjum pabba í dag, með þakklæti í hjarta og minnumst lífsins með honum. Hann trúði á áframhaldandi líf og að eftir dauðann myndi hann hitta foreldra sína og systkini. Við sjáum hann því fyrir okkur glaðan með sinni upprunafjölskyldu, það er fallegt.

Sesselja, Sara og

Inga Birna. mbl.is

minningar

Elsku afi minn, ég kveð þig með söknuði og minnist allra góðu stundanna þegar ég kom til ykkar ömmu upp á Akranes þegar ég var lítil. Þú varst alltaf mikil barnagæla og ég man hvað það var gott að kúra á stóru bumbunni þinni þegar ég var þreytt.

Bestu stundirnar okkar tveggja saman voru allir bíltúrarnir okkar niður á bryggju að skoða fuglana, þú leyfðir mér að sitja frammí og ég mátti stjórna útvarpinu. Mér fannst líka alltaf æðislegt að fá að fara með þér í vinnuna. Þú leyfðir mér að velja bækur á bókasafninu sem var á hæðinni fyrir neðan skrifstofuna þína og svo sat ég hjá þér og las. Í kaffitímanum dýfðirðu iðulega sykurmola í kaffi og gafst mér.

Þú varst mikill græjukall og varst sá fyrsti sem ég vissi af sem eignaðist þráðlausan síma. Þú komst heim ofsaspenntur með ristastóra tösku, settir upp NMT-símann og hringdir í hann úr heimasímanum. Þetta fannst mér alveg ótrúlegt og hélt að þú hlytir að vera einhvern veginn að gabba okkur, það hefði verið þér líkt.

Á sumrin fór ég oft með ykkur ömmu í bústaðinn ykkar við Vesturhópsvatn og hef haldið í þá hefð eftir að ég óx úr grasi og eignaðist mín eigin börn. Ein mín uppáhaldsminning af þér er í eitt skipti þegar ég var að hlaupa út til að loka hliðinu út á veg, þá sast þú í sólinni við Selið og kallaðir til mín: „Ertu þarna elsku stelpan mín.“

Ég er þakklát fyrir að dætur mínar og eiginmaður hafi fengið að kynnast þér elsku afi minn. Hvíldu í friði.

Inga María.