Hættur Jósef Kristinn Jósefsson hefur lagt skóna á hilluna.
Hættur Jósef Kristinn Jósefsson hefur lagt skóna á hilluna. — Skapti Hallgrímsson
Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn Jósefsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 31 árs að aldri, en þetta kom fram á samfélagsmiðlum Stjörnunnar í gær.
Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn Jósefsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 31 árs að aldri, en þetta kom fram á samfélagsmiðlum Stjörnunnar í gær. Jósef er uppalinn í Grindavík þar sem hann lék í fimm ár áður en hann gekk til liðs við búlgarska félagið Chernomorets Burgas í febrúar 2011. Hann sneri aftur til Grindavíkur í ágúst 2011 áður en hann samdi við Stjörnuna árið 2017. Jósef lék 131 leik í efstu deild með bæði Stjörnunni og Grindavík þar sem hann skoraði níu mörk.