Blygðunarleysi. N-Allir
Norður | |
♠K94 | |
♥ÁG953 | |
♦753 | |
♣Á7 |
Vestur | Austur |
♠85 | ♠D1063 |
♥1064 | ♥D82 |
♦1082 | ♦64 |
♣106532 | ♣KDG8 |
Suður | |
♠ÁG72 | |
♥K7 | |
♦ÁKDG9 | |
♣94 |
Suður spilar 7♦.
Tölvan er fljót að reikna og með því að kíkja á hendur andstæðinganna sér hún í hendingskasti að alslemma stendur í þremur litum og grandi. Er lesandinn jafn fljótur að telja upp í þrettán slagi?
Eitt par (af átta) í októbermóti ocbl.org sagði raunar 7♦, en sagnhafi valdi að svína hjartagosa og fór því niður. Sú leið er þó sennilega best, því ef drottningin er þriðja rétt í hjarta þarf ekki að svína í spaða. En tölvan er blygðunarlaus og hefði unnið 7♦ án þess að snúa viftunni. Og 7♥ vinnur tölvan einfaldlega með hringsvíningu, spilar út hjartagosa og lætur hann fara ef austur dúkkar. Drepur annars og svínar fyrir tíu vesturs. Hið sama gerir hún í 7G.
Vinnubrögðin í 7♠ eru aðeins flóknari. Þar er um tvennt að velja: fara af stað með ♠9 strax, eða taka á ♠K og spila níunni næst. Fella sem sagt ♠8x í vestur og mynda gaffal með ♠Á7.