Ásgeir Þór Ásgeirsson
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Lögreglan mun rannsaka möguleg brot karlaliða Vals og Leiknis Reykjavík á sóttvarnalögum en leikmenn beggja liða fögnuðu vel þegar Íslandsmótið í knattspyrnu var blásið af.

Lögreglan mun rannsaka möguleg brot karlaliða Vals og Leiknis Reykjavík á sóttvarnalögum en leikmenn beggja liða fögnuðu vel þegar Íslandsmótið í knattspyrnu var blásið af.

Valsmenn fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum og Leiknismenn fögnuðu sæti í efstu deild á næsta ári. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn, staðfesti í samtali við Fréttablaðið að málið yrði rannsakað. Birtust myndir og myndbönd af fögnuði beggja liða og leikur grunur á broti á sóttvarnalögum, en fleiri en 20 virtust koma saman í fögnuði beggja liða. Félögin sendu bæði frá sér yfirlýsingu þar sem beðist var afsökunar á framferðinu.

johanningi@mbl.is