Ásgerður Stefanía Baldursdóttir var ekki í leikmannahóp Vals á Hlíðarenda í gær. Ásgerður tjáði mbl.is að hún bæri barn undir belti.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir var ekki í leikmannahóp Vals á Hlíðarenda í gær. Ásgerður tjáði mbl.is að hún bæri barn undir belti. Ásgerður, sem er 33 ára gömul, er á meðal reyndustu leikmanna efstu deildar kvenna frá upphafi en hún á að baki 251 leik í efstu deild.
Þá eru tveir leikmenn Vals í barneignarfríi en Fanndís Friðriksdóttir á von á sínu fyrsta barni eins og fram hefur komið. Valur á alla vega einn leik eftir á keppnistímabilinu, í 2. umferð Meistaradeildarinnar.