[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Stafræna tónlistarhátíðin Live from Reykjavík hefst eftir átta daga, 13.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Stafræna tónlistarhátíðin Live from Reykjavík hefst eftir átta daga, 13. nóvember og til að hita upp fyrir hana verður boðið upp á fimm tónleikamyndbönd á vef Landsbankans með fimm hljómsveitum og listamönnum frá og með deginum í dag. Live from Reykjavík er skipulögð af Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni sem var aflýst í ár vegna Covid-19 og koma myndböndin á vef Landsbankans í stað „off-venue“-dagskrárinnar sem verið hefur fastur liður á Iceland Airwaves til fjölda ára, þ.e. tónleika utan dagskrár með fríum aðgangi. Á vef Landsbankans á slóðinni landsbankinn.is/icelandairwaves má nú finna myndbönd með flutningi JóaPé og Króla, Moses Hightower, Sykurs, gugusar og BSÍ á tveimur völdum lögum, þ.e. tíu lögum í heildina.

Landsbankinn hefur verið styrktaraðili hátíðarinnar frá árinu 2014 og staðið að gerð myndbanda með upprennandi listamönnum hátíðarinnar á ári hverju.

Sköpun í kófinu

Gugusar var upphaflega hljómsveit en er nú sólóverkefni Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdóttur sem er 16 ára. Hún gaf fyrr á þessu ári út 16 laga plötu með eigin lögum og textum sem nefnist Listen To This Twice og á tónleikum sínum fyrir Live from Reykjavík flytur hún tvö óútgefin lög með aðstoð trommarans Sólrúnar Mjallar Kjartansdóttur.

Guðlaug gaf fyrrnefnda plötu út 29. febrúar, á hlaupársdegi en vegna kófsins hefur hún þurft að fresta útgáfutónleikum í tvígang og ekki ljóst hvenær hægt verður að halda þá. Kórónuveirunni hefur hins vegar ekki tekist að stöðva sköpunarkraft Guðlaugar. „Ég er að vinna í nýrri plötu núna og því meiri tíma sem ég hef heima þeim mun fleiri lög bætast við plötuna,“ segir Guðlaug en hún er með stúdíó heima hjá sér og segist sjá sjálf um hljóðfæraleik, söng og upptökur. „Ég geri rosalega mikið í tölvunni,“ segir Guðlaug sem er líka fyrsta árs nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún stefnir að því að gefa út plötu í lok janúar á næsta ári með íslenskum textum sem hún semur sjálf, nema hvað.

Óljósar framkvæmdir

„Við erum með tvö lög af nýju plötunni, Lyftutónlist , þannig að þetta er nánast frumflutningur,“ segir Andri Ólafsson, liðsmaður Moses Hightower, þar sem rétt rúmlega hundrað manns sáu hljómsveitina á tónleikum hennar í júní. Lögin tvö eru „Framkvæmdir“ og „Stundum“. Um hvað fjalla þau? „Viðlagið í „Stundum“ er „stundum líkjast eigendur hundum“ og þar er reynt að finna kómísku hliðina á þeim líkindum og hundarækt. Hitt lagið er pínulítil paranoja og hjartsláttartruflanir í gangi,“ segir Andri og að óljósar framkvæmdir valdi þeim óþægindum. Hlustenda sé að átta sig á hverjar framkvæmdirnar séu.

Andri er spurður að því hvað Moses Hightower hafi verið að sýsla í kófinu. „Við getum nú ekki kvartað af því við spiluðum í Hljómahöllinni á Látum okkur streyma í fyrstu bylgju og svo náðum við að spila þrenna litla tónleika niðri í bæ meðan allt var í góðu í sumar. En svo þurftum við að fella niður stóra tónleikaferð í haust en það er hálfpartinn þessu að þakka að platan okkar kom út núna í haust því við höfðum allt í einu tíma til að klára hana í stúdíói. Við gátum loksins rumpað henni af.“

Andri segir hljómsveitina með ýmislegt í pípunum sem fólk fái að sjá á næstu misserum, þ.á m. heimildarmynd sem gerð er í samstarfi við RÚV.

„Rosa mikið stuð“

Halldór Eldjárn, liðsmaður Sykurs, er hinn hressasti þegar blaðamaður nær tali af honum. Halldór gegnir líka tímabundið stöðu umboðsmanns sveitarinnar í fjarveru umboðsmannsins, er „handhafi umboðsvalds“, eins og hann orðar það sjálfur.

Halldór er spurður að því hvað Sykur muni bjóða upp á í sínu myndbandi. „Við bjóðum upp á tvö lög, annars vegar „Svefneyjar“ sem er nú verðlaunað lag, það var lag ársins í flokki raftónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum, og hins vegar „Lost Song“ eða „Týnda lagið“. Bæði þessi lög komu út á plötu sem við gáfum út fyrir ári síðan, plötunni JÁTAKK . Þetta var rosa mikið stuð, að koma þarna og spila þetta því við höfðum faktískt ekki spilað frá því á Airwaves í fyrra,“ segir Halldór.

En hvað hefur Sykur verið að gera? „Við höfum verið í hálfgerðum dvala eins og flest önnur bönd en vorum með einhverjar þreifingar að vera með útgáfutónleika áður en allt skall á í mars,“ segir Halldór og því hafi Sykur fagnað því að geta haldið tónleika í vernduðu umhverfi sem nú má sjá á vef Landsbankans. „Eftir þessa löngu hvíld eru allir trommuheilar komnir á fullt í að búa til nýja tónlist,“ segir hann og spennandi að sjá hverju Sykur skilar af sér árið 2021.

Þyrstir í tónleika

Kristinn Óli, helmingur tvíeykisins JóiPé&Króli, segir þá félaga lítið hafa sinnt tónlistinni undanfarið, í kófinu, fyrir utan að flytja tvö lög ásamt hljómsveit fyrir „off venue“-hluta Live from Reykjavík. „Við tókum tvö lög af plötunni Í miðjum kjarnorkuvetri sem kom út 17. apríl. Með okkur var bandið okkar sem fylgir okkur eiginlega alltaf núna og gerir tónlistina með okkur. Það vantaði reyndar Starra bassaleikara en þetta er vonandi eins skemmtilegt og hægt er og næst því sem hægt verður að komast af venjulegri upplifun af tónleikum,“ segir Kristinn.

Hann segir þó nokkurn tíma hafa farið í að velja lögin tvö en á endanum hafi hópurinn náð lendingu. „Þó að þetta sé mjög vel tekið upp er þetta ekki alvörudæmið sem mann þyrstir svolítið í að gera aftur,“ segir hann um tónleika án gesta. Þeir Jói hafa verið uppteknir hvor í sínu lagi, Jói í námi í Listaháskóla Íslands og Kristinn að þjálfa lið Flensborgar í Gettu betur og lið Menntaskólans í Reykjavík í Morfís en hann hefur keppt í hvoru tveggja. „Ég er smá nörd þegar kemur að þessu,“ segir Kristinn og bætir við að hann bíði þess að geta hafið æfingar á leikritinu Benedikt búálfi í uppsetningu Menningarfélags Akureyrar. „Ég leik Tóta tannálf, hinn álfinn,“ segir Kristinn.

Þeir Jói náðu ekki að halda útgáfutónleika líkt og svo margir aðrir sem gáfu út plötur skömmu fyrir Covid og segir Kristinn að hann sé nú kominn í dálitla pásu frá tvíeykinu. „Hann er ekkert sérstaklega sáttur við þá ákvörðun mína,“ segir Kristinn kíminn um Jóa.

Gamalt og nýtt

Sigurlaug Thorarensen og Julius Pollux Rothlaender skipa dúettinn BSÍ sem stofnaður var árið 2017. „Við spilum tvö lög, eitt af fyrstu EP-plötunni okkar sem heitir „Ekki á leið“ og svo tökum við nýtt lag af nýrri plötu sem kemur út á næsta ári, það heitir „Tal 11“,“ segir Sigurlaug og að þau Julius hafi langað að flytja eitt gamalt lag og eitt nýtt og að lögin væru ólík. Sigurlaug syngur og leikur á trommur og Julius leikur á bassa, stjórnar sampler og spilar á hljómborð með fótunum. Fjölhæft fólk þar á ferð.

Sigurlaug er spurð að því hvað þau Julius hafi verið að gera í kófinu og segir hún þau hafa samið lög fyrir plötuna væntanlegu, sett upp stúdíó og einbeitt sér að tónlistarsköpun. Í sumar hafi þau náð að spila í Iðnó á lítilli hátíð á vegum listasamlagsins post-dreifingar og þá hafi rifjast upp fyrir þeim hversu skemmtilegt væri að halda tónleika.

Platan sem kemur út á næsta ári mun bera titilinn Stundum þunglynd en alltaf andfasísk og segir Sigurlaug titilinn eiga við um þau Julius. „Við erum að leika okkur með tvöfalt EP, þetta eru tíu lög og annar helmingurinn snertir á ástarsorg og að vera leið en hinn er meira „upbeat“ og andfasísk pönkleg lög,“ segir Sigurlaug um plötuna sem nú er í smíðum.