30 ára Ragna Björk ólst upp á Álftanesi en býr núna á Selfossi. Ragna Björk er verkfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Helsta áhugamál hennar er útivist og hún hefur gaman af fjallgöngum.

30 ára Ragna Björk ólst upp á Álftanesi en býr núna á Selfossi. Ragna Björk er verkfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Helsta áhugamál hennar er útivist og hún hefur gaman af fjallgöngum. Síðan hefur hún gaman af ferðalögum erlendis, sem er nú ekki hægt á þessum tímum, en Ragna er núna í barnsburðarleyfi.

Maki : Aron Valur Leifsson, f. 1991, tæknifræðingur.

Barn : Hinrik Bragi, f. 2020.

Foreldrar : Guðrún Gísladóttir, f. 1951, kennari og bókasafnsfræðingur, og Bragi Guðmundsson, f. 1948, matreiðslumeistari. Þau búa á Álftanesi.