Mörg þúsund manns sameinuðust fyrir framan skjáina á fimmtudaginn í síðustu viku þegar Siggi Gunnars stýrði fjölskyldubingói í beinni útsendingu á mbl.is. Bingóið gekk eins og í sögu og þátttaka fór fram úr öllum væntingum. Ákveðið var að halda gleðinni gangandi og í kvöld verður slegið til veislu í beinni útsendingu á mbl.is.
Klukkan 19:00 hefst annar þáttur af bingói Morgunblaðsins, mbl.is og K100. Enn og aftur sér Siggi Gunnars um að stjórna þættinum með Evu Ruzu sér til halds og trausts.
„Ég er mjög spenntur fyrir öðrum bingóþætti. Þetta gekk svakalega vel í síðustu viku, þúsundir spilara tóku þátt og gleðin var mikil. Við ætlum að byggja ofan á reynsluna frá í síðustu viku og gera enn betur og ég vona að sem flestir setjist fyrir framan skjáinn og taki þátt,“ segir Siggi sem sló heldur betur í gegn á skjánum í síðustu viku.
„Við erum ekki mikið að fara út að skemmta okkur næstu vikurnar og ég vona að þetta gleðji einhverja þarna úti, sérstaklega fjölskyldur enda er bingó mikið fjölskyldusport.“