Ísafjörður Togarinn Júlíus Geirmundsson bundinn við bryggju.
Ísafjörður Togarinn Júlíus Geirmundsson bundinn við bryggju.
Lögreglan á Vestfjörðum lýkur á næstu dögum yfirheyrslum yfir skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni ÍS, en sem kunnugt er kom kórónuveirusmit upp í togaranum á dögunum og ekki var skeytt um að koma þá í land heldur veiðum haldið áfram í trássi við reglur.

Lögreglan á Vestfjörðum lýkur á næstu dögum yfirheyrslum yfir skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni ÍS, en sem kunnugt er kom kórónuveirusmit upp í togaranum á dögunum og ekki var skeytt um að koma þá í land heldur veiðum haldið áfram í trássi við reglur. Margir þeir sem voru um borð veiktust, en hafa nú náð bata eða eru lausir úr sóttkví. Lögregla hefur tekið sjómennina tali þegar þeir hafa náð bata og hefur nú rætt við 23 menn. Enn er þó eftir að ræða við skipstjórann sem væntanlega verður laus úr einangrun á næstu dögum.

„Myndin er að skýrast,“ segir Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri. Þegar yfirheyrslum lýkur verði tekin ákvörðun um hvort málið gangi áfram til ákæru. sbs@mbl.is