30 ára Sveinn Smári ólst upp í Laugardalnum og býr núna í Árbænum. Hann vinnur í álveri Norðuráls á Grundartanga. Helstu áhugamál Sveins eru íþróttir og er fótboltinn þar efstur. Sveinn spilar í 4. deild á Íslandi á sumrin og stundar snjóbretti á veturna.
Maki : Snædís Gerður Hlynsdóttir, f. 1991, félagsráðgjafi.
Barn : Hlynur Smári, f. 2017.
Foreldrar : Leifur Harðarson, f. 1957, kennari og leigubílstjóri og goðsögn í íslensku blaki, og Ólöf Sveinhildur Helgadóttir, f. 1957, húsmóðir. Þau búa í Kópavogi.