Knattspyrnumaðurinn Grétar Snær Gunnarsson er á leið í KR samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Grétar, sem er 23 ára, kemur til félagsins frá Fjölni þar sem hann lék á nýafstaðinni leiktíð.

Knattspyrnumaðurinn Grétar Snær Gunnarsson er á leið í KR samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Grétar, sem er 23 ára, kemur til félagsins frá Fjölni þar sem hann lék á nýafstaðinni leiktíð. Miðjumaðurinn skoraði eitt mark í sautján leikjum með Fjölnismönnum í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, í sumar en liðið féll úr deildinni í haust ásamt Gróttu. Grétar Snær er uppalinn hjá FH en hann hefur einnig leikið með HK og Víkingi úr Ólafsvík hér á landi. Þá varð hann færeyskur meistari með HB undir stjórn Heimis Guðjónssonar árið 2018. Grétar á að baki átján leiki fyrir yngri landslið Íslands. bjarnih@mbl.is