Hans Prins
Hans Prins
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hans Prins, hótelstjóri á nýja Courtyard-hótelinu í Keflavík, segir útlitið bjart þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Hótelið var opnað í byrjun október en það er fjögurra stjarna og þar eru 150 herbergi.

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Hans Prins, hótelstjóri á nýja Courtyard-hótelinu í Keflavík, segir útlitið bjart þrátt fyrir krefjandi aðstæður.

Hótelið var opnað í byrjun október en það er fjögurra stjarna og þar eru 150 herbergi. Courtyard er eitt 30 vörumerkja sem heyra undir Marriott-hótelkeðjuna, sem er risi á alþjóðlegum hótelmarkaði.

Þegar Morgunblaðið kom við á hótelinu voru hermenn úr bandaríska flughernum meðal gesta.

„Reksturinn hefur gengið vel við erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. Verðið fyrir gistinguna er mjög sanngjarnt miðað við gæði þjónustunnar,“ segir Prins. Nýja hótelið sé því vel samkeppnishæft. Staðsetningin skipti miklu máli en hótelið er steinsnar frá Keflavíkurflugvelli.

Styrkir ferðaþjónustuna

Þá styrki hið alþjóðlega vörumerki ferðaþjónustuna á svæðinu.

„Staðsetningin er okkur afar mikilvæg. Hún á mikinn þátt í velgengni okkar fyrsta mánuðinn og mun eiga þátt í velgengni okkar í framtíðinni. Það er svo sannarlega þörf fyrir svona hótel á svæðinu,“ segir Prins og bendir á að hótelið henti m.a. sem fyrsti og síðasti dvalarstaður á ferðalagi um Ísland.

Spurður um framtíðarhorfur í rekstrinum bendir Prins á fjölgun ferðamanna fyrir faraldurinn. 12