Billie Holiday lést árið 1959, 44 ára.
Billie Holiday lést árið 1959, 44 ára. — pxfuel.com
Kvikmynd Væntanleg er glæný heimildarmynd um bandarísku djasssöngkonuna Billie Holiday eftir James Erskine. Hún byggist að miklu leyti á viðtölum sem blaðakonan Linda Lipnack Kuehl tók við ýmsa samferðamenn Holiday á áttunda áratugnum.
Kvikmynd Væntanleg er glæný heimildarmynd um bandarísku djasssöngkonuna Billie Holiday eftir James Erskine. Hún byggist að miklu leyti á viðtölum sem blaðakonan Linda Lipnack Kuehl tók við ýmsa samferðamenn Holiday á áttunda áratugnum. Tilgangurinn var að skrifa bók en Kuehl entist á hinn bóginn ekki aldur til að ljúka við verkið. Undir orðum Tonys Bennetts, Charles Mingus og Counts Basies sjáum við svo myndir frá glæstum ferli Holiday.