Ítalska skólakerfið. N-AV
Norður | |
♠9543 | |
♥Á4 | |
♦K1076 | |
♣ÁD5 |
Vestur | Austur |
♠-- | ♠KD72 |
♥109876 | ♥5 |
♦ÁDG95 | ♦8432 |
♣G107 | ♣9864 |
Suður | |
♠ÁG1086 | |
♥KDG32 | |
♦-- | |
♣K32 |
Suður spilar 6♠.
„Hver einasti skólakrakki á Ítalíu kann að meðhöndla slíkan lit,“ skrifar Mark Horton í mótsblað Októberbikarsins. Varla, en OK – Horton er hortugur í skrifum sínum og hér er hann að hreyta í Ralph Katz fyrir að fara niður á 6♠. Málið snýst um spaðann, hvort betra sé að tvísvína eða taka fyrst á ásinn.
Katz og Nick Nickell voru eina parið í 6♠ en Katz tapaði slemmunni með því að leggja niður spaðaás í öðrum slag. Hann fékk út hjartatíu í sögðum lit sínum og hefur verið stunguhæddur. Vel lesið, út af fyrir sig, því vestur átti fimmlit í hjarta!
En hvað er það sem krakkar læra í ítölskum skólum samkvæmt Horton? Þetta: Tvísvíning heldur vörninni í einum slag í 76% tilfella, ásinn í 57,5% tilfella. Munurinn liggur í samanburði á hjónunum þriðju og fjórðu í austur, á móti hjónunum blönkum í vestur.