30 ára Tandri ólst upp í Kópavoginum en býr í Reykjavík núna. Tandri er dreifingarstjóri hjá MS Ís, en er núna í fæðingarorlofi og er menntaður sagnfræðingur. Sem stendur er hann að flísaleggja baðherbergið.

30 ára Tandri ólst upp í Kópavoginum en býr í Reykjavík núna. Tandri er dreifingarstjóri hjá MS Ís, en er núna í fæðingarorlofi og er menntaður sagnfræðingur. Sem stendur er hann að flísaleggja baðherbergið. Helstu áhugamál Tandra eru bóklestur, tónlist og útivist og öll hreyfing.

Maki : Drífa Atladóttir, f. 1981, eigandi Jógastúdíós, er jógakennari og rekur netverslun með jógavörur.

Börn : Kjalar, f. 2016, og Móa, f. 2019.

Foreldrar : Halldór Valdimarsson, f. 1950, vinnur á þjónustuskrifstofu FS, og Elísabet Hákonardóttir, f. 1952, fv. flugfreyja. Þau búa í Kópavogi.