Hápunktur Sveindís Jane skoraði þrennu í sigri á Val í toppslag 23. júlí á Kópavogsvelli. Breiðablik vann 4:0-sigur og svo 1:0-sigur í útileiknum.
Hápunktur Sveindís Jane skoraði þrennu í sigri á Val í toppslag 23. júlí á Kópavogsvelli. Breiðablik vann 4:0-sigur og svo 1:0-sigur í útileiknum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Sveindís Jane Jónsdóttir er besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins, annað árið í röð. Sveindís fékk 21 M í 15 leikjum með Breiðabliki í sumar. Lék hún aðeins einn leik án þess að fá M og þá skoraði hún 14 mörk í 15 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með Breiðabliki. Sveindís var lánuð til Kópavogsfélagsins fyrir tímabilið frá Keflavík og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti þegar tímabilið var blásið af, en Breiðablik var með 42 stig, tveimur stigum meira en Valur, og með leik til góða þegar leik var hætt á Íslandsmótinu.

Fótbolti

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Sveindís Jane Jónsdóttir er besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins, annað árið í röð. Sveindís fékk 21 M í 15 leikjum með Breiðabliki í sumar. Lék hún aðeins einn leik án þess að fá M og þá skoraði hún 14 mörk í 15 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með Breiðabliki. Sveindís var lánuð til Kópavogsfélagsins fyrir tímabilið frá Keflavík og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti þegar tímabilið var blásið af, en Breiðablik var með 42 stig, tveimur stigum meira en Valur, og með leik til góða þegar leik var hætt á Íslandsmótinu.

Vorum langbesta liðið

„Þetta var ótrúlega flott tímabil hjá okkur og við erum mjög sáttar þótt það sé leiðinlegt að hafa ekki fengið að klára tímabilið, en við sættum okkur alveg við þetta. Þetta var orðið svolítið langdregið og maður var farinn að bíða eftir að tímabilið yrði blásið af,“ sagði Sveindís við Morgunblaðið. Hún segir að Breiðablik sé verðskuldaður Íslandsmeistari í ár. „Við unnum báða leikina við Val með markatölunni 5:0 og ég held það sé óhætt að segja að við vorum langbesta liðið í deildinni í ár.“

Breiðablik tapaði ekki leik á síðustu leiktíð en þurfti þrátt fyrir það að sætta sig við annað sætið á eftir Val. Sveindís segir liðið hafa verið hungrað í að fara einu skrefi lengra í ár. „Þær töpuðu ekki leik í fyrra en náðu samt ekki að verða Íslandsmeistarar. Við töpuðum einum leik núna en sem betur fer misstum við ekki af titlinum. Þær voru mjög hungraðar í þennan titil núna.“

Fall í fyrra, meistari í ár

Sveindís var lánuð til Breiðabliks eftir að hún féll úr efstu deild með Keflavík á síðasta ári, en það var hennar fyrsta ár í efstu deild. Fyrstu tvö árin í deild þeirra bestu hafa því verið afar ólík; fall og meistaratitill. „Þetta hafa verið tvö mjög ólík sumur hjá mér. Ég er á toppnum núna en akkúrat á hinum endanum á síðasta tímabili. Það var mjög svekkjandi að falla í fyrra og að sjálfsögðu ekkert sem við ætluðum okkur. Það er gaman að sjá að þær fóru beint aftur upp, það var mikilvægt,“ sagði Sveindís, en Keflavík hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar í sumar og tryggði sér því sæti í efstu deild á ný.

Sveindís er ánægð með eigin frammistöðu á tímabilinu, eins og gefur að skilja, en eina markmiðið sem hún setti sér fyrir tímabilið var að komast í liðið. Hún gerði það og töluvert betur.

Sátt við eigin frammistöðu

„Ég get alveg sagt að ég er frekar sátt. Ég bjóst ekki alveg við að byrja alla leikina en ég vann mig inn í liðið og fannst ég eiga skilið að vera í byrjunarliðinu. Ég er mjög ánægð með mína frammistöðu. Markmiðin mín snerust um að komast í liðið og ná góðu sambandi við stelpurnar. Það voru svoleiðis markmið hjá mér, en ég setti mér ekki markmið um hversu mörg mörk ég ætlaði að skora. Ég ætlaði að koma mér inn í liðið og spila eins mikið og ég gæti.“

Framherjinn var aðeins 14 ára þegar hún lék sinn fyrsta leik með Keflavík og voru leikirnir í deild og bikar orðnir 80 þegar hún fór til Breiðabliks. Hún viðurkennir að það sé auðveldara að spila með Breiðabliki þar sem hún fær meiri þjónustu en hjá Keflavík. „Það eru aðeins betri leikmenn hjá Breiðabliki en hjá Keflavík. Breiðablik spilar öðruvísi bolta og meiri sóknarbolta. Ég fékk ekki mikla aðstoð hjá Keflavík, þær voru mjög aftarlega og ég var oft ein frammi og þurfti að gera mikið sjálf. Ég fékk meiri aðstoð í Blikaliðinu og það er helsti munurinn.“

Þrennan stóð upp úr

Sveindís gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 4:0-heimasigri Breiðabliks á Val í toppslag 21. júlí á Kópavogsvelli. Hún segir það toppinn á góðu tímabili, ásamt útisigrinum á Val 3. október, en það reyndist síðasti leikurinn á tímabilinu.

„Það er held ég hápunkturinn að skora þessa þrennu. Það var geggjað að skora þrennu á móti Val og svo að vinna þær á útivelli var líka rosalega gaman. Þá vorum við eiginlega búnar að tryggja okkur titilinn og það hefði verið gaman að fá að taka á móti honum þá,“ sagði Sveindís og hló. „Þá var þetta næstum því komið hjá okkur. Toppurinn á þessu tímabili var að vinna Val í bæði skiptin og sérstaklega á heimavelli þegar ég skora þrennu.“

Æðislegt að fá tækifæri með landsliðinu

Gott ár varð enn betra þegar Sveindís var valin í A-landsliðið fyrir heimaleikina við Lettland og Svíþjóð í undankeppni EM í september. Hún byrjaði landsliðsferilinn með látum því eftir 32 mínútur í fyrsta landsleiknum gegn Lettum var Sveindís búin að skora tvö mörk. Hún var verðlaunuð með byrjunarliðssæti gegn Svíþjóð þar sem hún lagði upp mark í 1:1-jafntefli. Sveindís var svo enn og aftur í byrjunarliðinu er Ísland þurfti að sætta sig við 0:2-tap á útivelli gegn Svíþjóð í síðasta mánuði. Sveindís, sem er enn þá bara 19 ára, var ánægð með upplifunina.

„Það var æðislegt að fá tækifærið með landsliðinu. Ég var smá stressuð fyrst en ég þurfti þess ekki, þetta eru frábærar stelpur og frábær hópur. Þær tóku vel á móti mér og ég var mjög ánægð með þetta. Ég var aðeins stressuð þegar ég kom inn í Breiðabliksliðið, en ég þekkti svo margar þar úr yngri landsliðum. Það var meira stress að koma inn í A-landsliðið. Ég er ótrúlega ánægð með þessa byrjun hjá landsliðinu og að fá þetta traust frá Jóni Þóri. Það er alls ekki sjálfgefið að vera í byrjunarliðinu í öllum þessum leikjum og ég var mjög ánægð með það.“

Eins og áður hefur komið fram var Sveindís lánuð til Breiðabliks frá Keflavík. Lánssamningurinn er nú á enda og er hún orðin leikmaður Keflavíkur á nýjan leik. Hún reiknar ekki með að spila með Keflavík næsta sumar. „Þetta var bara lánssamningur hjá Breiðabliki og ég er komin aftur til Keflavíkur. Ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að gera en mér finnst mjög ólíklegt að ég spili með Keflavík næsta sumar,“ viðurkenndi Sveindís.

Vill spila með besta liði heims

Hún er ekki viss hvað tekur við, en Sveindís hefur verið orðuð við félög fyrir utan landsteinana og þá sérstaklega í Svíþjóð, en hún virðist hafa heillað sænsk félög með frammistöðu sinni í landsleikjunum.

„Ég veit ekki hvort ég held áfram hjá Breiðabliki eða fer út. Þetta er allt í vinnslu. Ég hef ekki fengið neitt sent á mig persónulega þar sem umboðsmaðurinn minn sér um allt svona. Ég er ekki mikið að skoða þetta núna þar sem ég ætlaði að skoða þetta eftir tímabilið og það er mjög stutt síðan tímabilið kláraðist. Umboðsmaðurinn hefur sagt mér að einhver lið hafi sýnt áhuga en ég veit ekki hvaða lið það eru.“

Sveindís ætlar sér að fara alla leið í fótboltanum og er hann nú í algjörum forgangi eftir að hún útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég veit mig langar í háskóla en á meðan ég veit ekki hvað mig langar að læra er fótboltinn númer eitt, tvö og þrjú. Ég ætla mér að ná eins langt og hægt er og komast í besta lið í heimi,“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir ákveðin.