Dóra Júlía flytur jákvæðar fréttir á K100. Hún segir frá því að maður nokkur í Queensland í Ástralíu gróðursetti á dögunum 40 þúsund sólblóm til þess að senda létt og glaðleg skilaboð út í heiminn.

Dóra Júlía flytur jákvæðar fréttir á K100. Hún segir frá því að maður nokkur í Queensland í Ástralíu gróðursetti á dögunum 40 þúsund sólblóm til þess að senda létt og glaðleg skilaboð út í heiminn. Hann skrifaði með sólblómunum „G'Day World From Oz“ eða „Góðan daginn heimur frá Ástralíu“ með stórum stöfum. Þúsundir Ástrala hafa ferðast innanlands til að skoða sólblómin hans og hefur þetta vakið mikla gleði. Maðurinn hefur einnig fengið jákvæð viðbrögð víðsvegar um heiminn og ætlar sér að gera þetta árlega en segir engum frá því hver næstu skilaboð hans verða.