Allt var að verða vitlaust við talningu póstatkvæða í stálborginni Pittsburgh í Pennsylvaníu á föstudag.
Allt var að verða vitlaust við talningu póstatkvæða í stálborginni Pittsburgh í Pennsylvaníu á föstudag. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um skeið mátti halda að Ísland væri orðið 51. ríki Bandaríkjanna, svo mikill var áhuginn og fréttaflutningurinn af forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Svo mikill að stundum virtust aðrar fréttir vart komast að. Var þó margt annað í fréttum.

Um skeið mátti halda að Ísland væri orðið 51. ríki Bandaríkjanna, svo mikill var áhuginn og fréttaflutningurinn af forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Svo mikill að stundum virtust aðrar fréttir vart komast að. Var þó margt annað í fréttum.

Liðna helgi var kynnt ný reglugerð um sóttvarnir og skólastarf, en Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði markmiðið að tryggja menntun og halda skólahaldi eins óbreyttu og unnt væri, án þess þó að slaka á sóttvörnum í nokkru. Var skólum því hólfaskipt, í 50 manna hópa í yngstu bekkjunum en 25 manna í hinum eldri, svo ekki þyrfti að loka heilu skólunum ef til smits kæmi. Grímuskylda er í eldri bekkjum, þar sem tveggja metra reglunni verður ekki við komið og tíu manna fjöldatakmörk í framhaldsskólum.

Bandaríski aðmírállinn Robert Burke og sagði varnarsamstarfið við Ísland svo mikilvægt að til greina kæmi að koma upp varanlegum umsvifum á Íslandi til að treysta varnir á Norður-Atlantshafi. Nefndi svo að það kynni að vera ábatasamt fyrir Íslendinga, rétt eins og hann væri nýbúinn að ræða málin við Aron heitinn í Kauphöllinni.

Fyrirætlanir borgarinnar um Nýja-Skerjafjörð , nýtt íbúahverfi við sjóinn skammt frá flugvellinum, kunna að verða flóknari í framkvæmd eftir að Heilbrigðiseftirlit borgarinnar varaði við því að gert væri ráð fyrir skóla ofan í olíumenguðum jarðvegi. Hann þyrfti að flytja eða hreinsa, enda ótækt að hafa athafnasvæði barna þar. Á Íslandi er engin móttökustöð fyrir slíkan jarðveg.

Kosningabaráttan í Bandaríkjunum náði hámarki um liðna helgi og fram á mánudag, þótt eftir æ færri atkvæðum væri að slægjast. Um 90 milljónir manna höfðu annaðhvort neytt atkvæðaréttar síns eða a.m.k. fengið póstatkvæði í hendur fyrir kjördag, svo þá þegar stefndi í metkjörsókn .

Skoski leikarinn Sean Connery lést níræður að aldri.

***

Bandaríkjamenn gengu að kjörborðinu á þriðjudag og voru Joe Biden , félagar hans í Demókrataflokknum og velflestir fjölmiðlar nokkuð vissir um stórsigur. Donald Trump Bandaríkjaforseti lét það þó ekki draga úr sér kjark eða kjaft.

Hryðjuverk var framið í Vínarborg þegar vopnaður íslamisti lét til skarar skríða skammt frá bænahúsi og safnaðarheimili gyðinga í borginni og skaut fólk nokkuð handahófskennt, fjóra til bana og særði 23 aðra, suma lífshættulega. Hann var felldur af lögreglu í skotbardaga. Vínarlögreglan taldi upphaflega að um hóp hryðjuverkamanna væri að ræða, en tilræðismaðurinn reyndist vera einn, austurrískur fylgismaður ISIL af albönskum uppruna.

Landspítalinn tók nýja kórónuveirudeild í gagnið á Landakoti, en hún er ætluð fólki á batavegi, sem enn þarf þó á sjúkrahúsvist að halda.

Varðskipið Ægir var auglýst til sölu af Ríkiskaupum, en það var smíðað í Danmörku árið 1968 og á því langa og frækilega sögu að baki við landhelgisgæslu og björgunarstörf. Klippunum svonefndu, sem notaðar voru til þess að skera á togvíra landhelgisbrjóta í þorskastríðunum um 50 mílurnar og 200 mílurnar, beitti fyrst Guðmundur Kærnested skipherra á Ægi haustið 1972.

Fram kom í samtali við Gunnar Egil Sigurðsson , framkvæmdastjóra hjá Samkaupum, að netverslun hjá Nettó hefði haldist stöðug síðan þriðja bylgja kórónuveirunnar reigði sig. Telur hann að neysluhættir dagvöru hér á landi hafi breyst til frambúðar.

Sögð var frétt af því að rannsóknir á 245 ára gömlum hákarli , sem veiddist í haustralli Hafrannsóknastofnunar árið 2017, leiddu ekki í ljós nein þekkt einkenni hrörnunar, líkt og mannskepnan þarf að glíma við, hvorki í heila né taugakerfi. Bara í fullu fjöri fyrir utan að vera dauður.

Í Hafnarfirði hafa verið settir skynjarar í rusladalla bæjarins. Nefnast þeir síðan snjalldallar.

Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur fest kaup á norsku skipi, sem heitir því frábæra nafni Harðhaus . Það verður þriðja uppsjávarskip útgerðarinnar þegar það verður afhent í febrúar.

Örlygur Hálfdánarson , bókaútgefandi og Viðeyingur, lést níræður að aldri.

***

Alls reyndist um 101 milljón Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði utan kjörfundar en samt mynduðust víða miklar raðir við kjörstaði, enda kosningaþátttaka þar meiri en gerst hefur í 120 ár. Viðbúið var að talning myndi víða taka tíma og staðan að lokinni kosninganótt enn í algerri tvísýnu, þótt ljóst væri að fylgi Donalds Trump Bandaríkjaforseta væri talsvert meira en skoðanakannanir höfðu gefið til kynna.

Í ljós kom samkvæmt tölfræði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, að Ísland var í öðru sæti á Norðurlöndum á eftir Svíþjóð, þegar horft var til fjölda umsókna um alþjóðlega vernd miðað við höfðatölu. Hið sama var upp á teningnum þegar fjöldi dvalarleyfa var skoðaður, en nær þriðji hver umsækjandi fékk hér hæli.

Forysta verkalýðshreyfingarinnar vísaði á bug öllum hugmyndum um frestun umsamdra launalækkana , hvað sem liði rekstraráföllum í atvinnulífi vegna kórónuveirunnar.

***

Áhrif kórónuveirunnar brjótast víða fram en allt að þriðjungsaukning hefur verið á sölu í verslunum Krónunnar undanfarna mánuði, miðað við sama tímabil í fyrra. Ásta Fjeldsted , framkvæmdastjóri Krónunnar , segir það ekki koma á óvart, mun fleiri vinni og borði heima hjá sér, mötuneyti og veitingastaðir að mestu lokuð.

Sagt var frá því að þörf væri á mikilli og hraðri uppbyggingu hjúkrunarheimila á næstu árum vegna hlutfallslegrar fjölgunar aldraðra. Talið er að íbúum landsins, 80 ára og eldri, fjölgi úr 13 þúsund í 34 þúsund árið 2050. Verði áform stjórnvalda um byggingu hjúkrunarheimila óbreytt gætu biðlistar sjöfaldast, en nú bíða 400 manns eftir hjúkrunarrými. Það þýðir að byggja þyrfti eitt meðalhjúkrunarheimili á ári.

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis leggur til verulega útvíkkun á tekjufallsstyrkjum, sem kostað gæti um eða yfir 23 milljarða króna. Óli Björn Kárason formaður nefndarinnar segir að samkvæmt tillögunni muni styrkirnir þá ekki lengur einskorðast við allra minnstu fyrirtækin.

Valkvæðar aðgerðir á Landsspítalanum hefjast tæplega á ný fyrr en í fyrsta lagi 17. nóvember. Nú eru gerðar þar um 35 aðgerðir á dag, sem er rúmur þriðjungur af því sem vanalega gerist. Það verður því töluverður stabbi að vinna upp þegar þar að kemur.

Þrátt fyrir að úrslit í forsetakosningunum á þriðjudag væru ljós í flestum ríkjum Bandaríkjanna í lok miðvikudags, vantaði enn nokkur ríki upp á og svo var mjótt á mununum, bæði í einstökum ríkjum og á heildina litið. Eftir því sem fleiri póstatkvæði voru talin styrktist staða Joe Biden , en það þótti Trump forseta tómt svindl og sakaði demókrata um að reyna að stela kosningunum. Þjóðmálaumræða vestanhafs batnaði ekki við það.

***

Fyrsta bylgja kórónuveirunnar kostaði hjúkrunarheimili í landinu um 450 milljónir króna, bæði í beinum kostnaði og glötuðum tekjum vegna færri innlagna á heimilin. Forvarsmenn þeirra gagnrýna ríkisvaldið fyrir að hafa ekki viljað taka þátt í þeim kostnaði en styðji við eigin stofnanir.

Spenna var á sumum stöðum í borginni vegna varaformannskosningar á rafrænum landsfundi Samfylkingarinnar, en þar leiða saman hesta sína þær Heiða Björg Hilmisdóttir , borgarfulltrúi og núverandi varaformaður, og Helga Vala Helgadóttir alþingismaður. Kosningabaráttan var aðallega á Facebook.

Haldið var áfram að skera fé vegna riðu í Skagafirði , sem kom upp á fjórum sauðfjárbúum þar nyrðra.

Það er þó ekkert hjá því sem gerist í Danmörku , þar sem verið er að slagta hverjum einasta minki í landinu vegna kórónuveirusmits. Hér verður ekki sagður brandari um að það hafi minkað.