Hafnarfjörður Eiður Smári Guðjohnsen stýrir FH-ingum.
Hafnarfjörður Eiður Smári Guðjohnsen stýrir FH-ingum. — Morgunblaðið/Sigurður Ragnars
Eiður Smári Guðjohnsen verður þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu næstu tvö árin. Logi Ólafsson hættir sem þjálfari liðsins en verður tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar félagsins.
Eiður Smári Guðjohnsen verður þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu næstu tvö árin. Logi Ólafsson hættir sem þjálfari liðsins en verður tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar félagsins. Eiður Smári og Logi tóku saman við þjálfun liðsins í sumar eftir að Ólafur Kristjánsson hætti störfum til að taka við Esbjerg í Danmörku. FH-ingurinn Davíð Þór Viðarsson, sem lagði skóna á hilluna í fyrra, verður aðstoðarþjálfari liðsins en hann var fyrirliði liðsins um árabil og varð Íslandsmeistari sjö sinnum.