Stórt smáatriði. S-Enginn
Norður | |
♠9876 | |
♥ÁDG8 | |
♦108 | |
♣K92 |
Vestur | Austur |
♠ÁG3 | ♠D10 |
♥9762 | ♥1043 |
♦G954 | ♦KD762 |
♣DG | ♣876 |
Suður | |
♠K542 | |
♥K5 | |
♦Á3 | |
♣Á10543 |
Suður spilar 4♠.
Í stuttu máli sagt þarf að fella litlu hjónin blönk í laufi til að vinna 4♠. Spilið kom upp í úrslitaleik Októberbikarsins á ocbl.org og báðir sagnhafar – Geir Helgemo og Nick Nickell – fengu út tígul. Þeir tóku drottningu austurs með ás, spiluðu þrisvar hjarta og hentu tígli, svo spaða á kóng og ás.
Eric Greco og Geoff Hampson voru í vörninni gegn Helgemo. Hampson spilaði tígulgosa inni á spaðaás, sem Helgemo trompaði og spilaði spaða á drottningu austurs. Greco varð nú að hreyfa laufið (eða spila tígli í tvöfalda eyðu ella) og valdi til þess SEXUNA – lítið, drottning og kóngur. Síðar meir, þegar stóra stundin rann upp, svínaði Helgemo lauftíunni og Hampson fékk fjórða varnarslaginn á laufgosa.
Svipuð staða kom upp á hinu borðinu, en þar spilaði Michael Levine ÁTTUNNI í laufi frá hundunum þremur. Nickell las áttuna sem topp af engu og hitti í laufið.