30 ára Smári er fæddur og uppalinn Reykvíkingur en er nú fluttur austur fyrir fjall. Smári er menntaður gítarsmiður úr Musician's Institute í Kaliforníuríki.

30 ára Smári er fæddur og uppalinn Reykvíkingur en er nú fluttur austur fyrir fjall. Smári er menntaður gítarsmiður úr Musician's Institute í Kaliforníuríki. Hann er mikill lífskúnstner og á sér mörg áhugamál en þau helstu eru skotveiðar, kaffi og tónlist.

Maki : Eva María Pétursdóttir, f. 1990, uppeldis- og menntunarfræðingur.

Börn : Frans Logi, f. 2015, og Júlía Logn, f. 2020.

Foreldrar : Hallgrímur Jónsson, f. 1966, framkvæmdastjóri, og

Helga Rut Baldvinsdóttir, f. 1968, sjálfstæður atvinnurekandi.