Körfuknattleikskappinn Elvar Már Friðriksson átti stórleik þegar lið hans Siauliai vann sinn fyrsta sigur í efstu deild Litháens gegn Neptunas í gær.
Körfuknattleikskappinn Elvar Már Friðriksson átti stórleik þegar lið hans Siauliai vann sinn fyrsta sigur í efstu deild Litháens gegn Neptunas í gær. Leiknum lauk með 93:88-sigri Siauliai en Elvar Már var með tvöfalda tvennu, skoraði 21 stig og gaf tólf stoðsendingar. Þá tók hann einnig fimm fráköst en Elvar Már hefur skorað 17 stig að meðaltali í deildinni í vetur, ásamt því að gefa átta stoðsendingar að meðaltali í leik. Siauliai er með einn sigur í neðsta sæti deildarinnar en tíu lið leika í efstu deild Litháens.