Leiðarendi Hellirinn er langur gangur og alls einn kílómetri.
Leiðarendi Hellirinn er langur gangur og alls einn kílómetri. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Umhverfisstofnun veitti Hafnarfjarðarbæ nýverið leyfi til þriggja daga vinnu þriggja starfsmanna við frágang bílastæðis sem gert var við hellinn Leiðarenda nú í haust.

Umhverfisstofnun veitti Hafnarfjarðarbæ nýverið leyfi til þriggja daga vinnu þriggja starfsmanna við frágang bílastæðis sem gert var við hellinn Leiðarenda nú í haust. Hellirinn er innan Reykjanesfólkvangs og er jarðrask þar óheimilt nema með leyfi stofnunarinnar.

Helga Ingólfsdóttir, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs í Hafnarfirði, segir að það sé vilji bæjaryfirvalda að aðkoma sé sem best að hellinum og því hafi verið ráðist í gerð bílastæða fyrir 17 bíla og tvær rútur auk annarra framkvæmda. Leiðarendi sé um margt áhugaverður sem fræðsluhellir fyrir Íslendinga sem og útlendinga, en þoli ekki mikið álag.

Vildu tímabundna lokun

Hún segir að fylgst sé með fjölda gesta á svæðinu og á síðustu árum hafi dregið úr heimsóknum. Það megi einkum skýra með bættu aðgengi að Raufarhólshelli við Þrengslaveg, en einnig sé hann auðveldari yfirferðar heldur en Leiðarendi við Bláfjallaveg.

Fyrir fjórum árum óskaði umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar eftir því við Umhverfisstofnun að Leiðarenda yrði lokað tímabundið vegna álags og hættu á skemmdum á viðkvæmum dropasteinum. Þá var einnig rætt um hóflega gjaldtöku af ferðamönnum.

Að sögn Helgu varð af hvorugu, enda hefur dregið úr fjölda gesta, og tekur Hafnarfjarðarbær hvergi gjald af ferðamannastöðum innan bæjarfélagsins. Einn slíkur staður er Seltún við Krýsuvík og segir Helga að þar hafi verið rætt um gjaldtöku á bílastæðum líkt og gert hefur verið í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hún segir að slíkt sé þó ekki komið á dagskrá. aij@mbl.is