Juneyao Air Flug til Kína er á teikniborðinu.
Juneyao Air Flug til Kína er á teikniborðinu. — Ljósmynd/Tang Xiaozhang
Fulltrúar Íslands funduðu í síðustu viku með forstjóra flugfélagsins Juneyao Air, Zhao Hong Liang, og öðrum forsvarsmönnum flugfélagsins.

Fulltrúar Íslands funduðu í síðustu viku með forstjóra flugfélagsins Juneyao Air, Zhao Hong Liang, og öðrum forsvarsmönnum flugfélagsins. Fundurinn fór fram í Sjanghæ í Kína, en þar lýsti flugfélagið yfir áhuga á að hefja flug hingað til lands þegar faraldur kórónuveiru er yfirstaðinn. Þetta staðfestir Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Kína. Flugfélagið greindi frá því í fyrra að það hefði hug á að fljúga hingað til lands. Hefja átti flug í sumar milli landanna með viðkomu í Helsinki í Finnlandi. Heimsfaraldur kórónuveiru kom hins vegar í veg fyrir umræddar áætlanir.

Forsvarsmenn Juneyao Air höfðu fyrir faraldur átt í viðræðum við Icelandair um samstarf á flugleiðinni. Í svari Icelandair við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að hugsanlegt sé að viðræður verði teknar upp að nýju þegar aðstæður breytast. Aðspurður segir Gunnar að Juneyao Air vilji vera í góðu samstarfi við Icelandair. „Ef ekki væri fyrir veiruna væru þeir búnir að koma á flugi til Íslands. Þeir eru mjög áhugasamir um samstarf við Icelandair, en auk þess hafa þeir verið í sambandi við Íslandsstofu,“ segir Gunnar.

aronthordur@mbl.is