Gísli Helgi Árnason fæddist á Sauðárkróki 17. júní 1949. Hann lést á heimili sínu 1. nóvember 2020.
Foreldrar hans voru Kristín Guðrún Eiríksdóttir, f. 8. apríl 1930, d. 2. des. 1955, og Árni Hólm Einarsson, f. 4. feb. 1925, d. 4. júlí 1990.
Systkini Gísla voru tvíburarnir Ágúst og Einar, f. 30. maí 1947, Hlynur, f. 10. júlí 1951, og Guðrún Margrét, f. 21. okt. 1954.
Árið 1967 giftist Gísli Önnu Konráðsdóttur, f. 2. nóv. 1949 á Sauðárkróki. Foreldrar hennar voru Sigríður Helga Skúladóttir og Konráð Þorsteinsson. Gísli og Anna bjuggu öll sín búskaparár á höfuðborgarsvæðinu. Börn þeirra eru: 1) Kristín Helga, f. 29. mars 1970, maki Sebastian Mikaelsson. Börn Kristínar eru a) Arnór Gísli, f. 5. júní 1987. Sonur Jökull Tinni, f. 9. jan. 2016. b) Daníel Þór, f. 20. des. 1993. Sambýliskona Ástrós Ásgeirs. Þeirra sonur Valtýr Þór, f. 13. júní 2019. c) Anna Karen, f. 19. apríl 1999. Sambýlismaður Hafþór Júlíusson. 2) Guðmundur Víðir, f. 8. ágúst 1973. Sambýliskona Ellen Elíasdóttir. Sonur Guðmundar er Tómas Bjarni, f. 30. maí 1993, dóttir Dalía Mjöll, f. 19. mars 2018, sambýliskona Tómasar Jarðþrúður Hulda Atladóttir, dóttir hennar Alda, f. 2.5. 2017, og sonur þeirra Kristófer Bjarmi, f. 10.10. 2020. Dóttir Guðmundar Perla Dís, f. 27. júní 2000, d. 22. sept. 2019. 3) Konráð Valur, f. 13. mars 1979. Maki Sif Sveinsdóttir. Sonur Sveinn Míó, f. 15. okt. 2013.
Gísli ólst upp í Skagafirðinum, en fluttist frá Sauðárkróki 1965 til Reykjavíkur 16 ára að aldri. Hann hóf þá nám í kjötiðnaði hjá Kjöti og grænmeti, sem var í eigu SÍS. Eftir fjögurra ára nám starfaði hann hjá fyrirtækinu í 23 ár. Árið 1992 sneri Gísli baki við kjötvinnslustörfum og hóf störf við eigin verktakarekstur. Síðustu starfsárin vann hann hjá Endurvinnslunni ehf. við viðhald tækja.
Gísli kom töluvert að félagsmálum um ævina. Sat í stjórn Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna og var formaður þess um hríð. Þá sat hann í prófnefnd félagsins um nokkurra ára skeið.
Við stofnun Seljasóknar árið 1980 var hann kosinn fyrsti formaður safnaðarnefndar og gegndi hann því starfi í níu ár. Gísli gekk til liðs við Kiwanishreyfinguna árið 1990 þegar kiwanisklúbburinn Höfði var stofnaður. Hann var mjög virkur í starfi hreyfingarinnar og var meðal annars umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland – Færeyjar starfsárið 2000-2001.
Árið 2004 gekk Gísli í Oddfellowregluna en þar gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir stúkuna sína Gissur hvíta, meðal annars sem yfirmeistari 2018-2020.
Vegna veikinda hætti Gísli á vinnumarkaðnum fyrri hluta árs 2019. Hann greindist nokkru síðar með MND-sjúkdóminn.
Útför Helga verður frá Grafarvogskirkju í dag, 13. nóvember 2020, klukkan 15.
Streymt verður frá útförinni:
Virkan hlekk á slóð má nálgast á:
Elsku pabbi minn, það er svo erfitt að kveðja. Ég hélt að við hefðum nokkrar vikur í viðbót saman og færum jafnvel í sólina um jólin, en almættið ákvað annað.
Ég get ekki lýst því hvað ég sakna þín mikið. Takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig.
Með ást þinni kenndir þú mér að elska,
með trausti þínu kenndir þú mér að trúa,
með örlæti þínu kenndir þú mér að gefa.
Þín dóttir,
Kristín (Kiddý).
Þú varst alltaf fyrstur að bjóða fram hönd þína sama hver það var.
Þetta lýsir þér svo vel, hjálpsamur. Ég mun sakna þín svo mikið afi.
Þú varst ekki bara afi minn, þú varst langafi hans Tinna sem oftar en einu sinni óskaði eftir að hitta þig og ömmu.
Þú varst mér sem faðir, vinur, yfirmaður, samstarfsmaður, ferðafélagi um útlönd og lífið. Sú manneskja sem ég leit einna mest upp til.
Ég á óteljandi minningar með þér og flestar ómetanlegar sem ég mun minnast þangað til ég kveð.
Það er svo margt sem ég lærði af þér og er ævinlega þakklátur fyrir að hafa haft þig við hlið mér í þann tíma sem við fengum saman.
Að tala við þig var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum
saman
þú varst svo góður, þú varst svo klár.
Æ, hvað þessi söknuður verður sár.
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég mun sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt
Hann var mér svo góður, það er klárt
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
það veit enginn fyrir víst hvað verður um þig nú, en eitt er víst.
Að sá mikli fjöldi sem elskaði þig
svo heitt saknar þín.
Arnór Gísli Reynisson.
Margar góðar minningar rifjast nú upp frá samstarfi okkar og frá ferðalögum innanlands og utan, í heimsóknum til klúbba úti á landi og ferðir á Evrópu- og heimsþing Kiwanishreyfingarinnar. Einnig frá ferðum með Oddfellowstúkunni. Þau hjón Anna og Gísli voru einstaklega góðir og skemmtilegir ferðafélagar.
Fyrir rúmum 20 árum kynnti ég Oddfellowregluna fyrir Gísla og hvatti hann til þess að sækja um inngöngu í stúkuna Gissur hvíta, gerði hann það okkur öllum til góðs. Hann tók strax virkan þátt í starfi stúkunnar og gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir hana. Gísli var yfirmeistari stúkunnar á 20 ára afmæli hennar og stjórnaði hann hátíðarfundi í tilefni afmælisins af miklum virðuleik og yfivegun og var ég hreykinn af honum og stoltur að hafa fengið hann til liðs við Oddfellow.
Gísli var gull af manni með skemmtilegan húmor, ég á eftir að sakna míns góða vinar og kveð hann með þakklæti og virðingu og það gera bræður í Gissuri hvíta líka. Við Anna erum þakklát fyrir heimsókn þeirra hjóna til okkar í sumarbústaðinn í lok júní og kaffiboðið hjá þeim stuttu áður en þau fóru til Spánar. Við sendum Önnu og fjölskyldu og hinum mörgu vinum Gísla samúðarkveðjur.
Stefán R. Jónsson.
Kiwanisklúbburinn Höfði var stofnaður þetta kvöld, Gísli gerður að fyrsta forseta og ég ritari hans.
Mikill vinskapur skapaðist á milli okkar hjóna og Gísla og Önnu, sem varað hefur í 30 ár. Gísli var mikill félagsmálamaður, það var ótrúlegt hvað hann komst yfir og tók sér fyrir hendur og skilaði með sæmd. Smátt og smátt urðum við nánir vinir í gegn um Kiwanis. Eitt sinn er ég fór í Gunnlaugsbúð í Grafarvogi og nálgaðist kælinn sem lambalærin voru geymd í sá ég mann á kafi ofan í kælinum, veltandi hverju lærinu á eftir öðru. Þá spurði ég: „Gísli minn, hvað ertu að gera hálfur ofan í kælinum, líkar þér ekki verðið á kjötinu?“ Reis þá vinurinn upp með sigurglampa í augunum, með lambalæri í hægri hendi og sagði: „Björgvin, þetta er læri af gimbur, miklu mýkra kjöt.“ Þar sem hann var lærður kjötiðnaðarmaður vissi hann allt um kjöt.
Skagafjörðurinn var hans æskuslóð og það kom ljómi í augu hans þegar hann bar á góma. Þegar Gísli var sextugur, fyrir korteri, komu þau hjónin í húsið okkar í Tungunum. Eftir góða kvöldmáltíð á 17. júní spyr ég Gísla hvaða lag hann myndi vilja hlusta á. „Rósina,“ svaraði hann, „með Álftagerðisbræðrum.“ Er ég heyri þennan söng, enn þann dag í dag, hugsa ég til míns góða vinar og mun gera áfram.
Ég gæti skrifað margt um okkar samverustundir. Ég geymi þær í kolli mínum. Elsku Anna, börn og fjölskylda, við Sigrún vottum okkar dýpstu samúð og megi Guð varðveita ykkur.
Þar sem spor þín liggja, kæri vinur, mun ég ávallt minnast þín.
Björgvin Andri og Sigrún.
Fundum okkar Gísla bar fyrst saman fyrir fjörutíu árum. Báðir vorum við þá kallaðir til sameiginlegra starfa, þar sem þörf var fyrir áhuga og starfsvilja. Gísli hafði þá verið valinn fyrsti formaður nýstofnaðrar Seljasóknar og ég var nýkjörinn fyrsti sóknarprestur sömu sóknar. Þar voru okkur færð í fang mikil verkefni með fleira góðu fólki að vinna allt frá grunni.
Við þannig aðstæður er nauðsyn að eiga hugsjónir og vilja til starfa og að starfa saman.
Þar var einstaklega gott og farsælt að starfa með Gísla. Hann hafði trausta og prúðmannlega framkomu, kunni líka að hafa þá festu sem nauðsynleg er hjá þeim sem eru leiðtogar.
Í safnaðarstarfinu er boðskapur heilagrar kirkju það takmark, sem setja skal hæst. Við þau störf þarf einstaklinga, sem eiga hugsjón trúarinnar á Jesúm Krist. Þá hugsjón hafði Gísli og fylgdi henni eftir. Hann átti ákaflega gott með að tjá þann boðskap í orðum.
Prédikaði oft eftirminnilega við samkomur og athafnir. Það er því í mörgu þakklæti og virðing í huga okkar, sem fengum að starfa með Gísla. Við máttum líka horfa til ljúfra áfanga og sigra í hugsjónarstarfinu.
Það var mikil eftirsjá, þegar Gísli, með sinni góðu fjölskyldu, flutti í aðra sókn. En hann var alltaf mikill félagsmálamaður. Við fréttum af því, að hann hélt áfram félagsstörfum. Okkur kom það ekki á óvart, að víða var hann valinn til mestu forystustarfa og ábyrgða. Hann var líka hetja í baráttu við erfiðan sjúkdóm á síðustu árum.
Það er söknuður að horfa á eftir góðum vinum, minnast margs. Á þeim stundum er dýrmæt trúin sem Gísla var hugsjón. Um nálægð frelsarans í lífi og í dauða. Þangað er gott að horfa á kveðjustundu. Blessuð sé minning góðs samstarfsmanns og vinar.
Valgeir Ástráðsson.
Gísli var menntaður kjötiðnaðarmaður og starfaði við það um árabil. Laghentur og úrræðagóður var hann, og ófáar íbúðir og hús sem hann byggði eða breytti og þar gekk hann í öll verk og vann þau einstaklega vel. Gísli var mikil félagsvera og þótti fátt skemmtilegra en að taka þátt í félagsstörfum.
Ferðalög heilluðu Önnu og Gísla og nutu þau þess að ferðast vítt og breitt um heiminn sem og innanlands. Alltaf var Gísli undirbúinn og vel lesinn um þær ferðir sem til stóð að fara í. Það er okkur hjónum afar kært að hafa farið með þeim til Spánar núna í september þar sem Gísli naut sín í hitanum þrátt fyrir veikindin.
Vertu sæll kæri vinur og þakka þér fyrir samfylgdina.
Minning um góðan mann lifir í hjörtum okkar.
Elsku Anna og fjölskylda, við Guðrún sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Unnar Reynisson.
Elsku Anna og fjölskylda, mikill er ykkar missir og er samúð okkar Höfðafélaga hjá ykkur.
F.h. félaga í Kiwanisklúbbnum Höfða
Guðmundur Stefán Sigmundsson.
Ég bið mína engla að bæta
minn hag
er bjartsýnn að morgni ég vakna,
að alúð og fegurð ég öðlist í dag
og einskis ég þurfi að sakna.
Ég bið að þeir veiti mér
einlæga ást,
að aftur ég nái að kætast,
að dýrðleg nú muni hér dagsbirtan sjást
og draumarnir fái að rætast.
Ég þrái að blómstri mín viska
svo virk,
að veröldin muni mér hlífa.
Ég þrái að finna í frelsinu styrk
er fæ ég með englum að svífa.
(Kristján Hreinsson)
Hinsta kveðja,
Sigurður Pálsson.