30 ára Kolbrún Birna ólst upp í Laxárvirkjun í Aðaldal til fjórtán ára aldurs og flutti svo í Hafnarfjörð þar sem hún hefur búið síðan, fyrir utan tvö ár sem hún var í Danmörku í námi.

30 ára Kolbrún Birna ólst upp í Laxárvirkjun í Aðaldal til fjórtán ára aldurs og flutti svo í Hafnarfjörð þar sem hún hefur búið síðan, fyrir utan tvö ár sem hún var í Danmörku í námi. Hún vinnur sem sérfræðingur í tekjustýringu hjá Icelandair og er einnig framkvæmdastjóri Rafbox ehf.

Maki : Emil Örn Harðarson, f. 1990, mótastjóri hjá Sundsambandi Íslands.

Barn : Júlía Björk, f. 2019.

Foreldrar : Jóna Björg Björgvinsdóttir, f. 1963, fjármálastjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, og Bjarni Már Júlíusson, f. 1962, ráðgjafi í orkugeiranum og eigandi BMJ Consultancy.