Markahæstur Rúnar Kárason var í miklu stuði gegn Skjern í gær.
Markahæstur Rúnar Kárason var í miklu stuði gegn Skjern í gær. — Morgunblaðið/Eggert
Óvænt úrslit urðu í danska handboltanum í gær þegar Ribe-Esbjerg burstaði Skjern 36:23 á heimavelli en fjórir Íslendingar tóku þátt í leiknum. Lögðu þeir allir nokkuð af mörkum en Rúnar Kárason þó langmest.
Óvænt úrslit urðu í danska handboltanum í gær þegar Ribe-Esbjerg burstaði Skjern 36:23 á heimavelli en fjórir Íslendingar tóku þátt í leiknum. Lögðu þeir allir nokkuð af mörkum en Rúnar Kárason þó langmest. Rúnar var illviðráðanlegur og skoraði 11 mörk fyrir Ribe-Esbjerg úr 14 skottilraunum. Gunnar Steinn Jónsson skoraði 4 mörk og Daníel Þór Ingason 2 mörk. Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir Skjern sem er í 4.-7. sæti deildarinnar með 13 stig. Ribe-Esbjerg er með 7 stig í 12. sæti.