Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Formaður Viðreisnar leitar sífellt nýrra leiða til að draga flokkinn niður í ómerkilegan popúlisma og virðist telja að nú þegar innan við ár er í kosningar þurfi smáflokkurinn með slæma málstaðinn að herða þennan róður.

Formaður Viðreisnar leitar sífellt nýrra leiða til að draga flokkinn niður í ómerkilegan popúlisma og virðist telja að nú þegar innan við ár er í kosningar þurfi smáflokkurinn með slæma málstaðinn að herða þennan róður.

Þetta er líklega skýringin á ómerkilegri fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um fóstureyðingar í Póllandi. Þorgerður stillti spurningunni þannig upp að hún hefði áhyggjur af konum í Póllandi vegna lagasetningar þar í landi um fóstureyðingar, en tilgangur fyrirspurnarinnar var svo gagnsæ, augljós og misheppnuð árás á Sjálfstæðisflokkinn að annað eins hefur ekki sést í þinginu lengi. Er þó ýmsum brögðum beitt þar af hálfu þingmanna popúlistaflokkanna, Viðreisnar og systurflokkanna.

Það er ömurlegt að Viðreisn skuli nota deilur um viðkvæmt málefni í Póllandi til að reyna að slá pólitískar keilur hér á landi.

Hvers vegna beinir Viðreisn ekki frekar sjónum að því málefni sem flokkurinn var stofnaður um? Getur verið að formaður flokksins telji að ef hún minnir of rækilega á að flokkurinn er stofnaður og starfar til þess að reyna að þvinga Ísland inn í Evrópusambandið þá fækki mögulegum kjósendum mjög?

Getur verið að Viðreisn hafi ákveðið að reyna að sigla inn á þing undir fölsku flaggi á næsta kjörtímabili?