40 ára Júlíus Ingi ólst upp í Hafnarfirði og Ólafsvík og býr núna í Hafnarfirði. Júlíus Ingi er húsgagnasmiður og er núna að vinna hjá fyrirtækinu Þúsund fjalir.

40 ára Júlíus Ingi ólst upp í Hafnarfirði og Ólafsvík og býr núna í Hafnarfirði. Júlíus Ingi er húsgagnasmiður og er núna að vinna hjá fyrirtækinu Þúsund fjalir. Helstu áhugamál Júlíusar Inga eru hjólreiðar og almenn útivist og svo hefur hann gaman af því að horfa á kvikmyndir.

Maki : Katrín Knudsen, f. 1980, meistaranemi í félagsráðgjöf í Háskóla Íslands.

Börn : Viktor Árni, f. 2004, og Kristófer Logi, f. 2007.

Foreldrar : Þóra Viktoría Árnadóttir, f. 1945, og Júlíus Ingason, f. 1944, d. 2012. Hún býr í Hafnarfirði.