Vondur moli. V-AV
Norður | |
♠ÁD87 | |
♥985 | |
♦Á95 | |
♣1085 |
Vestur | Austur |
♠102 | ♠K953 |
♥1042 | ♥73 |
♦D6 | ♦G8432 |
♣ÁKDG84 | ♣63 |
Suður | |
♠G64 | |
♥ÁKDG6 | |
♦K107 | |
♣72 |
Suður spilar 4♥.
„Lífið er eins og konfektkassi, maður veit aldrei hvað maður fær,“ sagði móðir Forrests Gumps svo eftirminnilega. Sú speki sannaðist á Hollendingnum Ricco van Prooijen, sem hélt að hann hefði fengið virkilega góðan mola. Spilið er frá parasveitakeppni á netinu og yfirleitt byrjaði vestur vörnina með ♣ÁKD.
Tíu slagir eru skrifaðir í skýin, því austur þvingast sjálfkrafa í hörðu litunum: Sagnhafi trompar þriðja laufið, tekur þrisvar tromp og svínar spaðadrottningu. Austur drepur og spilar spaða um hæl, sem suður tekur á gosann, spilar síðasta hjartanu og hendir tígli í borði. Og austur er „dauð önd“.
Gegn Ricco skipti vestur óvænt yfir í tíguldrottningu í þriðja slag. Fagur moli á ytra borði en fullur af dísætu jukki við nánari kynni. Ricco drap heima á kóng, prófaði spaðann, en svínaði síðan tígulníu. Ooij.