Reynd Sandra Sigurðardóttir kastar boltanum frá marki Íslands í leiknum gegn Svíum á Laugardalsvellinum.
Reynd Sandra Sigurðardóttir kastar boltanum frá marki Íslands í leiknum gegn Svíum á Laugardalsvellinum. — Morgunblaðið/Eggert
Fótbolti Gunnar Egill Daníelsson Kristófer Kristjánsson Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið hópinn sem mætir Slóvakíu og Ungverjalandi í undankeppni EM 2021 og var niðurstaðan tilkynnt í gær.

Fótbolti

Gunnar Egill Daníelsson

Kristófer Kristjánsson

Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið hópinn sem mætir Slóvakíu og Ungverjalandi í undankeppni EM 2021 og var niðurstaðan tilkynnt í gær.

Tvær breytingar hafa verið gerðar á hópnum sem mætti Svíþjóð í lok október. Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir koma inn en þær Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru ekki í hópnum. Ísland mætir Slóvakíu 26. nóvember og svo Ungverjalandi 1. desember en báðir leikirnir verða spilaðir á útivelli.

Jón Þór tjáði Morgunblaðinu í gær að Karólína væri á leið í aðgerð. „Karólína Lea hefur komið frábærlega inn í okkar lið en hún er meidd, er á leiðinni í aðgerð á hné og getur því ekki verið með okkur í þessum tveimur leikjum. Það er auðvitað slæmt fyrir okkur og sömuleiðis getur Hólmfríður ekki verið með eftir að hafa komið sterk inn í síðustu verkefni. Að sama skapi er frábært að fá Rakel og Dagnýju aftur inn í okkar hóp. Þetta eru tveir reynslumiklir leikmenn sem munu nýtast okkur frábærlega í þessum leikjum,“ sagði Jón Þór.

Möguleikarnir eru góðir

Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals og íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, telur íslenska liðið eiga góða möguleika á að komast á EM. „Mér líst bara vel á að vera að fara að spila þessa leiki. Við erum í góðum séns. Við þurfum náttúrlega að vinna okkar leiki.“

Sandra segir gott fyrir liðið að tveir leikreyndir leikmenn komi inn á ný. „Í svona leikjum skiptir það auðvitað máli. Hins vegar hefur til dæmis Karólína, sem dettur út, staðið sig ótrúlega vel. Hún kom inn af miklum krafti og lék feikilega vel í þeim leikjum sem hún spilaði. Hún er með mikil gæði. Það er slæmt að missa hana en maður verður náttúrlega að hugsa að það kemur maður í manns stað. Þarna eru heldur betur nöfn, reynsla og gæði að koma inn í hópinn á nýjan leik.“

Sandra hefur spilað alla sex leikina í undankeppninni og staðið sig vel; aðeins fengið á sig fjögur mörk. Hún segir landsliðið afar vel sett þegar kemur að markvörðum og fagnar samkeppninni. „Alveg sama hver samkeppnin er þá er hún bara af hinu góða, ekki spurning. Ég er þarna til að æfa sem best og spila sem best og ætla mér að halda þessu sæti. Samkeppnin er af hinu góða fyrir mig og aðra leikmenn,“ segir hún og vonast að sjálfsögðu til þess að fá tækifæri til þess að halda stöðu sinni á EM þarnæsta sumar.

Landsliðið nýtur góðs af Evrópuleikjum Vals

Valur vann á dögunum góðan 3:0 sigur gegn HJK Helsinki í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. Miðvikudaginn 18. nóvember mætir liðið Glasgow City í annarri umferð. „Við erum í forréttindastöðu að fá að spila og æfa á þessum tímum. Við erum byrjaðar í undirbúningi og erum að fara að skoða þær á morgun á æfingu, að fara yfir vídeó og kynna okkur þær nánar. Við vitum að þær eru sterkar en við erum það líka þannig að þetta er mjög spennandi, að fá alvöru leik. Við vitum ekki alveg fyllilega hverjum við erum að fara að mæta en það er spennandi.“

Undirbúningurinn hefur gengið vel. Sandra segir það ekki síst vera vegna þess að eftir sigurinn gegn HJK hafi Valur fengið undanþágu frá sóttvarnayfirvöldum til að æfa nokkuð eðlilega. „Við fengum grænt ljós strax eftir þann leik og hófum æfingar á mánudaginn. Við fylgjum ákveðnum reglum um sóttvarnir hvað varðar mætingu og klefanotkun en fáum að spila eðlilegan fótbolta á æfingum. Við erum því búnar að æfa alla vikuna, sem er náttúrlega geggjað, ekki síst miðað við undirbúninginn sem við fengum fyrir seinasta leik. Þá er þetta talsvert betra.

Þá var hópur sem var að æfa heima en mátti ekki vera á fótboltaæfingum, þær voru bara í prógrammi frá styrktarþjálfurum. Þær voru með bolta og þurftu að sinna sínum æfingum sjálfar. En við vorum sjö sem vorum í landsliðsverkefni þannig að við fengum bæði leik og æfingar á háu stigi. Það voru samt sem áður allir leikmenn klárir,“ útskýrir Sandra.

Að þessu sinni eru aftur sjö leikmenn Vals í landsliðshópnum. Sandra telur landsliðið njóta góðs af því að liðsmenn Vals hafi fengið að æfa og spila undanfarið. „Ekki spurning, það hjálpar klárlega. Bæði fáum við að æfa og svo fáum við leiki til að halda okkur í spilformi.“

Að lokum bendir Sandra á að aðrir leikmenn sem spila á Íslandi hafi sömuleiðis fengið undanþágu. „Það var ákveðinn landsliðshópur sem fékk líka undanþágu til að æfa eðlilega, það fá allir að halda sér á tánum.“

*Landsliðshópinn og viðtal við Jón Þór er að finna á mbl.is/sport/fotbolti.