Ozzy og Iommi hafa þekkst lengi.
Ozzy og Iommi hafa þekkst lengi.
Vinátta Gömlu vopnabræðurnir úr Black Sabbath, Ozzy Osbourne og Tony Iommi, hafa aldrei verið nánari en undanfarið hálft annað ár.
Vinátta Gömlu vopnabræðurnir úr Black Sabbath, Ozzy Osbourne og Tony Iommi, hafa aldrei verið nánari en undanfarið hálft annað ár. Þetta upplýsti sá fyrrnefndi í sérstökum þætti sem tónlistarspekingurinn Matt Pinfield gerði í tilefni af því að í ár eru fjörutíu ár liðin frá útgáfu fyrstu sólóplötu Ozzys, Blizzard of Ozz. Eitt laganna á plötunni, Goodbye To Romance, fjallar einmitt um viðskilnað Ozzys og Sabbath árið 1979. Upplýst var í byrjun árs að Ozzy glímdi við parkinsonsveikina og hefur Iommi reynst honum vel í þeim hremmingum. „Þegar gefur á bátinn kemst maður að því hverjir eru vinir manns í raun,“ sagði Ozzy um Iommi og nefndi einnig Jonathan Davis úr Korn í þessu sambandi en þeir þekktust lítið fyrir.