Kylie Bunbury leikur í nýju þáttunum.
Kylie Bunbury leikur í nýju þáttunum. — AFP
Sjónvarp Handritshöfundurinn og framleiðandinn David E. Kelley á marga aðdáendur hér á landi eftir þætti á borð við Ally McBeal, Boston Legal og Big Little Lies. Nýjustu þættirnir hans kallast Big Sky og verða frumsýndir í Bandaríkjunum eftir helgina.
Sjónvarp Handritshöfundurinn og framleiðandinn David E. Kelley á marga aðdáendur hér á landi eftir þætti á borð við Ally McBeal, Boston Legal og Big Little Lies. Nýjustu þættirnir hans kallast Big Sky og verða frumsýndir í Bandaríkjunum eftir helgina. Þar er hermt af leit lögreglu og einkaspæjara að tveimur systrum sem trukkabílstjóri á að hafa rænt í Montana. Grunur leikur á að bílstjórinn sé raðmorðingi. Í helstu hlutverkum eru Kylie Bunbury og Ryan Philippe.