Athugull Southgate hefur fylgst vel með spilamennsku íslenska liðsins.
Athugull Southgate hefur fylgst vel með spilamennsku íslenska liðsins. — AFP
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær fyrir leik Englands og Íslands á Wembley í Þjóðadeild UEFA í kvöld. „Ég hef fylgst með íslenska liðinu í síðustu tveimur leikjum.
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær fyrir leik Englands og Íslands á Wembley í Þjóðadeild UEFA í kvöld. „Ég hef fylgst með íslenska liðinu í síðustu tveimur leikjum. Þeir hafa prófað nýtt leikkerfi, að spila með fimm manna varnarlínu og nú nota þeir einnig nýja leikmenn, unga og efnilega leikmenn. Þetta verður annar leikur á morgun og erfitt verkefni,“ sagði hann. England vann 1:0-sigur í viðureign liðanna hér heima í september.