Dreifð álagsárás var gerð á aðila innan fjármálageirans mánudaginn 9. nóvember sl., svokölluð DDos-árás. Um var að ræða stóra árás á íslenskan mælikvarða.
Hafði árásin afleiðingar víðar, s.s. hjá fjarskiptafélögunum, vegna bilunar í erlendri varnarþjónustu sem alla jafna hefði dregið mjög úr stærð hennar.
Frá þessu er greint á vefsíðu Póst- og fjarskiptastofnunar.
„Árásin hafði víðtæk áhrif, hún hríslaðist um fjarskiptainnviði landsins og kom einnig niður á greiðsluþjónustu og auðkennisþjónustu hér á landi. Með góðri samvinnu tókst þó að lágmarka skaðann eins og hægt var,“ segir í umfjölluninni.
Fram kemur að CERT-IS, sem er netöryggissveit stofnunarinnar, vinnur nú með fjarskiptafélögunum og fjármálageiranum að greiningu á árásinni og mótvægisaðgerðum til þess að minnka möguleg áhrif á lykilinnviði við slíkar aðstæður í framtíðinni.