30 ára Björgvin Óli er Selfyssingur í húð og hár. Hann er sjúkraflutningamaður og húsasmiður. Helstu áhugamál hans eru jeppa- og fjallaferðir og björgunarstörf. Hann er í Björgunarfélagi Árborgar og hefur verið undanfarin 15 ár.

30 ára Björgvin Óli er Selfyssingur í húð og hár. Hann er sjúkraflutningamaður og húsasmiður. Helstu áhugamál hans eru jeppa- og fjallaferðir og björgunarstörf. Hann er í Björgunarfélagi Árborgar og hefur verið undanfarin 15 ár. Síðan er útivist og ferðalög, bæði innan- og utanlands, mikið áhugamál.

Maki : Þórunn Ásta Helgadóttir, f. 1992, sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Dóttir : Ellen Margrét, f. 2018.

Foreldrar : Sigurbjörg Harðardóttir, f. 1971, iðjuþjálfi á Akureyri, og Ingvar Ólafsson, f. 1968, bílasmiður á Selfossi.