Hér skal því þó haldið til haga að lögverndun starfsgreina þarf að endurskoða atviksbundið, þ.e. með það í huga hvort og þá hvernig aðstæður í hverri og einni starfsgrein hafi breyst í áranna rás.

Nýverið var kynnt til sögunnar samkeppnismat OECD á regluverki ferðaþjónustu og byggingariðnaðar á Íslandi. Matinu má lýsa sem skynsamlegum leiðarvísi stjórnvalda hér á landi í átt til aukinnar samkeppnishæfni regluverks á þessum sviðum, neytendum til hagsbóta. Var niðurstaða matsins að 30 milljarða króna árlegur ábati lægi í ónýttum tækifærum til einföldunar regluverksins. Sá hluti úttektarinnar er vakti hvað mesta athygli sneri að lögverndun starfsgreina hér á landi, en ýmsar stéttir tengdar byggingariðnaði og ferðaþjónustu njóta slíkrar verndar. Þó ber að hafa í huga að þetta er aðeins lítill hluti umfjöllunarinnar, en tillögur OECD eru alls 438 talsins.

Lögverndun hentar vel í vissum tilvikum til leiðréttingar á markaðsbrestum, sem annars gætu hamlað samkeppni og skaðað neytendur. Lengi hefur þó verið vitað að of íþyngjandi regluverk getur orðið atvinnulífinu fjötur um fót og neytendum til baga. Í stuttu máli geta afleiðingarnar verið atvinnuleysi, hærra verð fyrir neytendur og minni framleiðni. Þá getur of íþyngjandi lögverndun haft neikvæð áhrif á nýsköpun og torveldað þróun nýrrar tækni og lausna.

Ein tillaga OECD vegna lögverndaðra starfsgreina var að endurskoða þyrfti í heild sinni löggjöf um löggiltar starfsgreinar, ekki síst lög um handiðnað nr. 43/1978, í þeim tilgangi að meta hver væru undirliggjandi markmið löggildingar og hvort þær takmarkanir á atvinnufrelsi sem fælust í löggildingu væru málefnalegar í ljósi markmiðanna. Í einhverjum tilfellum kynnu markmiðin að vera óljós eða úrelt. Ekki er að sjá að víðtækar breytingar hafi verið gerðar á umræddum lögum í gegnum tíðina með tilliti til þess hvaða störf eru löggilt og sá listi starfsgreina sem löggiltar hafa verið í reglugerð nr. 940/1999 nær óbreyttur frá því um aldamót, þegar hún var sett. Í reglugerðinni eru alls um sextíu löggiltar starfsgreinar.

Það sem mesta athygli vekur þó er að hér á landi njóta alls 165 starfsgreinar lögverndar, þar af 154 með leyfisskyldu sem er mest íþyngjandi form lögverndunar og í flestum þeirra er einnig við lýði vernd starfsheita. Af samantekt OECD er ljóst að mun fleiri starfsgreinar njóta lögverndunar með leyfisskyldu hér á landi en í nokkru þeirra ríkja sem OECD hafði til samanburðar (Norðurlöndin, Bretland, Írland og Holland). Í raun er munurinn sláandi og ástæða til þess að farið verði ofan í saumana á þessum málum hér á landi.

Hvað varðar skilvirkni og samkeppnishæfni almennt eru vísbendingar um að Ísland geti gert betur. Samkvæmt úttekt IMD-viðskiptaháskólans í Sviss er Ísland eftirbátur Norðurlandanna þegar kemur að regluverki atvinnulífsins og hafnar í 21. sæti af 63. Sömu sögu er að segja af mati á því hve einfalt það sé að eiga í viðskiptum hér á landi (e. ease of doing business), en samkvæmt Alþjóðabankanum stendur Ísland Norðurlöndunum einnig að baki í því tilliti og hafnar í 21. sæti af 190.

Augljóst er að víða eru tækifæri til úrbóta í regluverki byggingariðnaðar og ferðaþjónustu. Gæti verið að frekari tækifæri til einföldunar sé að finna í löggjöfinni? Líklega. Má heimfæra aðferðafræði OECD upp á regluverk sem á við fleiri svið atvinnulífsins? Alveg örugglega og miðað við þann ávinning sem OECD telur felast í tillögum sínum um byggingariðnað og ferðaþjónustu, er til mikils að vinna. Hér skal því þó haldið til haga að lögverndun starfsgreina þarf að endurskoða atviksbundið, þ.e. með það í huga hvort og þá hvernig aðstæður í hverri og einni starfsgrein hafi breyst í áranna rás. Hið sama þarf ekki að gilda um þær allar. Hér á landi gætu þar að auki verið uppi aðstæður sem ekki eru í samanburðarlöndunum sem gæfu þá mögulega tilefni til að fara aðrar leiðir. Í sumum tilfellum gæti einnig verið tilefni til að þrengja einkarétt til tilekinna starfa fremur en að afnema hann.

Í öllu falli er ákjósanlegt að stjórnvöld beiti sér af krafti fyrir því að einföldun regluverks nái fram að ganga, ekki síst þegar illa árar og þörfin fyrir viðspyrnu er brýn.